„P.s. viltu halda þessum bréfaskriftum leyndum þar til 50 árum eftir okkar dag,“ skrifar Jón Baldvin Hannibalsson í nóvember árið 1998, þá sendiherra Íslands í Bandaríkjunum og Mexíkó til Guðrúnar Harðardóttur systurdóttur Bryndísar Schram eiginkonu Jóns. Guðrún var fjórtán ára þegar fyrsta bréfið sem Nýtt Líf birtir barst henni en í bréfunum má finna berorða lýsingar á kynlífi Jóns Baldvins og eiginkonu hans Bryndísar Schram.
Bréfin eru sum hver rituð á formlegt bréfsefni Sendiráðuneytis Íslands í Bandaríkjunum. Þá sakar Guðrún hann í viðtali við Nýtt Líf, um að hafa brotið á sér frá tíu ára aldri þar til hún var fjórtán ára og svo aftur þegar hún var sextán og sautján ára. Guðrún segir brotin ekki hafa einskorðast við bréfaskriftir
Sendi bréf í Hagaskóla
Nýtt Líf sem kemur út í dag fjallar ítarlega um samskipti Jóns og Guðrúnar. Þar segir; „Þegar Guðrún var 14 ára sendi Jón Baldvin bréf stílað á Guðrúnu Harðardóttur, 8. Bekk, Hagaskóla við Hagatorg. Segir í bréfinu að ástæðan fyrir því að hann sendir bréfið í gegnum Hagaskóla sé sú að henni þyki ef til vill óþægilegt að fá þessi bréf heim til sín.“
„Munúðarfull saga“
Jón Baldvins endi Guðrúnu bréf í júní 2001 ásamt bókinni „In Praise of the Stepmother,“ eftir Mario Vargas. Í bréfinu segir Jón Baldvin bókina „munúðarfulla sögu“ um þroskaða konu sem ungur drengur leggur á girndarhug. Í bréfið sem er ritað á formlegt bréfsefni sendiráðs Íslands í Washington lýsir Jón samlífi hans og eiginkonu sinnar nokkuð ítarlega og lýsir því meðal annars upplestri Bryndísar úr bókinni við samfarir þeirra hjóna. „Elsku Guðrún. Hér kemur hin munúðarfulla saga sem ég lofaði þér og á að lokka þig inn í drauma næturnar,“ skrifar Jón Baldvin á póstkort sem fylgir bréfinu,
Málið rannsakað og niðurfellt
„Sú háttsemi kærða að senda kæranda bréf, frá Washington D.C. til Venesúela, þar sem hann lýsir samförum við eiginkonu sína, móðursystur kæranda, kann að mati ríkissaksóknara að falla undir verknaðarlýsingu 209. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940,“ segir í ákvörðun ríkissaksóknara um að dómtaka ekki málið. Þrátt fyrir þetta er niðurstaða ríkissaksóknara að hið ætlaða brot haf verið framið á erlendri grundu. Einungis sé heimilt að refsa samkvæmt íslenskum hegningarlögum sé það jafnframt refsivert í þeim ríkjum sem brot eru framin. „Það þýðir að ekki sé hægt að refsa Jóni Baldvini fyrir að hafa sært blygðunarsemi Guðrúnar nema það sé óheimilt með sama hætti að særa blygðunarkennd fólks í því landi sem brotið er framið,“ segir í umfjöllun Nýs Lífs um málið.
Sjá einnig:
MEINT FÓRNARLAMB JÓNS BALDVINS: „NIÐURFELLING MÁLSINS VAR ALGJÖRT SJOKK“
KYNFERÐISLEG BRÉF Á OPINBERU BRÉFSEFNI
Þóra segir ekki hafa verið þörf á umsögn Jóns Baldvins
JÓN BALDVIN: „ÉG KANNAST VIÐ MIKIÐ FJÖLSKYLDUBÖL“
KYNFERÐISLEG BRÉF JÓNS BALDVINS TIL UNGLINGSSTÚLKU BIRT
Jón Baldvin fer ekki fram á lögbann
Jón Baldvin setur fram kröfur vegna ásakana



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
