Kolfinna Baldvinsdóttir, dóttir Jóns Baldvins Hannibalssonar, tjáir sig um fjölmiðlaumfjöllun um bréfaskriftir föður síns til Guðrúnar Harðardóttur. „Ólýsanlegt að sitja hér í Brussel og sjá íslenska fjölmiðla gera sér mat úr máli sem var afgreitt fyrir mörgum árum og á rætur sínar í alvarlegum veikindum sem hafa valdið okkur miklum fjölskylduharmleik sl. 20 ár,“ skrifar Kolfinna á Facebook-síðu sína en þar tilgreinir hún hvað hún á við í athugasemdakerfinu þegar hún er spurð að því: „Veikindi systur minnar.“
„Dætur Jóns Baldvins hömruðu á því við mig að hann væri saklaus þar til sekt hans væri sönnuð,“ segir Guðrún Harðardóttir í samtali við Nýtt Líf sem birtir bréf Jóns Baldvins til hennar. Þar segir hún eina dóttur Jóns Baldvins standa með sér.
Í bréfunum er meðal annars að finna grófar kynlífslýsingar með nafngreindum einstaklingum. Árið 2005 kærði Guðrún samskipti Jóns Baldvins við hana, þá var hún 21 árs.
Samkvæmt umfjöllun Nýs Lífs var Guðrún tíu ára þegar fyrsta bréfið Jóns Baldvins barst henni. Guðrún kærði bréfaskriftin árið 2005, þá var hún 21 eins árs. Hún segir brot Jóns Baldvins hafa átt sér stað þegar hún var tíu til fjórtán ára og nemandi í Hagaskóla en þangað var hluti bréfanna sendur. Þá mun hann einnig hafa sent bréf á hana þegar stúlkan var sextán ára.
Sjá einnig:
MEINT FÓRNARLAMB JÓNS BALDVINS: „NIÐURFELLING MÁLSINS VAR ALGJÖRT SJOKK“
KYNFERÐISLEG BRÉF Á OPINBERU BRÉFSEFNI
Þóra segir ekki hafa verið þörf á umsögn Jóns Baldvins
JÓN BALDVIN: „ÉG KANNAST VIÐ MIKIÐ FJÖLSKYLDUBÖL“
KYNFERÐISLEG BRÉF JÓNS BALDVINS TIL UNGLINGSSTÚLKU BIRT
Jón Baldvin fer ekki fram á lögbann
Jón Baldvin setur fram kröfur vegna ásakana



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
