Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á umtalsvert magn kannabisefna í tveimur húsleitum í fyrradag. Við húsleit í fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur stöðvaði lögreglan kannabisræktun þar sem fundust 60 plöntur á lokastigi ræktunar sem vógu samtals 23 kíló.
800 grömm af kannabisefnum fundust einnig og var karlmaður á þrítugsaldri yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar sem rekja má til þess að tilkynnt var um mikinn vatnslega í húsinu. Vatnsleiðslan í ræktunaraðstöðunni hafði þá gefið sig og urðu skemmir á nokkrum íbúðum hússins vegna þessa.
Sama dag var gerð húsleit í Mosfellsbæ þar sem talsvert magn fíkniefna fundust. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var um að ræða 900 grömm af tilbúnu marijúana og 1,4 kíló af öðru kannabisefni. Húsráðendur, karl og kona um þrítugt, voru yfirheyrð í þágu rannsóknarinnar en fíkniefnin fundust í þurrkunaraðstöðu í risi hússins
Áður hafði lögreglan haft afskipti af manninum annars staðar og þá fundið á fjórða tug kannabisgræðlinga í bíl hans. Í framhaldinu var leitað á heimili hans með fyrrgreindum árangri. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
