Jón Baldvin Hannibalsson umgekkst átján ára vændiskonu í embættisferð sinni í Tallinn árið 2001. Þetta kemur fram í bréfum hans til Guðrúnar Harðardóttur sem Nýtt Líf birtir í dag. „Í A-Evrópu er alltaf fullt af háklassahórum á slíkum [veitinga]stað. Til að fá frið bauð ég einni með mér í mat. Hún var cirka 18 (ert þú ekki að nálgast það?),“ segir í bréfi Jóns Baldvins til Guðrúnar sem Nýtt Líf birtir.
Áður hafði hann lýst því fyrir Guðrún hvaða hátt hann hefur á þegar hann kemur einsamall í borg sem hann vill kynnast nánar en hafi skamman tíma. Sagðist hann ávallt finna sér leigubílstjóra og segja honum að fara með sig á eftirfarandi staði, gáfumannapöbb, fínan veitingastað og næturklúbb.
Í opinberum erindagjörðum
Nýtt Líf segir frá því að bréfið hafi verið skrifað þegar Jón Baldvin var staddur í opinberum erindagjörðum í Tallin, í Eistlandi, árið 2001 þar sem hann var heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu skipulagðri af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins. Jón var sæmdur æðstu heiðursorðu Eystrasaltsríkjanna þriggja árið 1996 vegna framgöngu sinnar í framhaldi af sjálfstæðisyfirlýsingum ríkjanna fimm árum áður.
Líkt og fyrr segir greindi hann Guðrúnu frá vændiskonum í bréfunum en hann segir konurnar hafa verið frá Rússlandi, Úkraínu, Póllandi og Litháen.
Skömmuðust sín ekki fyrir vinnuna
„Þær voru á aldur við þig –allar slavnesk fegurð á háum hælum og með tagl, naktar nema með fíkjulauf fyrir hið allra heilagasta og streng um rassinn og mittið þvert,“ segir í bréfi Jóns Baldvins til Guðrúnar en þar segir hann konurnar ekki hafa skammast sín fyrir vinnu sín. „Sem þær kölluðu kynlífsþjónustu,“ segir í bréfinu en hann segir sumar hafa verið fóstrur, aðrar hjúkkur og en hafði verið kennari. „Þjóðfélagið borgaði þeim „skid og ingenting“ fyrir það. Sú kátasta sagðist fá meira fyrir ein munnmök en sem barnfóstra á mánuði,“ segir í bréfinu.
Heiðraður í Tallin
Jón Baldvin tekur ekki fram í bréfinu hvort hann hafi keypt kynlífsþjónustu á meðan þessu stóð.
Jón Baldvin nýtur mikillar virðingar í Tallinn fyrir framlag sitt til sjálfstæðisbaráttu Eista, skömmu eftir fall Sóvétríkjanna. Í fyrra birtist grein í dagblaði í Tallini um Jón Baldvin, með fyrirsögninni: „Maðurinn sem þorði...“
Hann var einn af þeim sem var heiðraður á Íslandsdegi í Tallinn í fyrra.
Sjá einnig:
MEINT FÓRNARLAMB JÓNS BALDVINS: „NIÐURFELLING MÁLSINS VAR ALGJÖRT SJOKK“
KYNFERÐISLEG BRÉF Á OPINBERU BRÉFSEFNI
Þóra segir ekki hafa verið þörf á umsögn Jóns Baldvins
JÓN BALDVIN: „ÉG KANNAST VIÐ MIKIÐ FJÖLSKYLDUBÖL“
KYNFERÐISLEG BRÉF JÓNS BALDVINS TIL UNGLINGSSTÚLKU BIRT
Jón Baldvin fer ekki fram á lögbann
Jón Baldvin setur fram kröfur vegna ásakana



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
