ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Stríðsfréttaritarinn Marie Colvin lést í sprengingu

Hafði lýst hryllingnum í Sýrlandi nokkrum stundum áður
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
14:55 › 22. febrúar 2012
Maire Colvin.

Maire Colvin. Mynd Reuters.

Stríðsfréttaritari breska dagblaðsins Sunday Times, Marie Colvin, lést í árás á Sýrlandi. Það er fréttastofa Reuters sem greinir frá málinu en fréttirnar bárust nokkrum klukkustundum eftir að bandaríski fréttaritarinn hafði fært heiminum fréttir af hrikalegu ástandi í borginni Homs.

Franski ljósmyndarinnar Remi Ochlik er einnig sagður hafa látist í árásinni. Eru þau sögð hafa verið að koma sér út úr byggingu, þar sem bráðabirgða fjölmiðlamiðstöð hafði verið komið upp, þegar flugskeyti sprakk á byggingunni.

Í myndbandi sem hún gerði fyrir breska ríkisútvarpið BBC í gær lýsti hún árásum stjórnvalda á borgina. Sagði hún þær vera viðbjóðslegar. „Ég horfði á barn deyja í dag. Algjörlega hryllilegt. Skotum, flugskeytum og eldi rignir látlaust yfir svæði þar sem óbreyttir borgarar búa í borginni.“

Árið 2010 ræddi hún um hættur í starfi við athöfn þar sem fallnir blaðamenn voru heiðraðir. „Verkefni okkar er að greina frá hryllingnum sem fylgir stríði með nákvæmni og án fordóma. Fréttamenn sem fjalla um átök bera mikla ábyrgð og takast á við erfiða valkosti. Stundu gjalda þeir með lífi sínu,“ sagði Colvin sem missti auga í sprengingu í Sri Lanka árið 2002.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?