ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Strauss- Kahn laus úr haldi

Óvíst með ákæru
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:52 › 22. febrúar 2012

Dominique Strauss-Kahn, er laus úr haldi lögreglu en mun þurfa að mæta fyrir dómara á næstu dögum. Hvort hann er vitni eða með stöðu grunaðs manns fæst ekki staðfest frá frönskum lögregluyfirvöldum. Strauss- Kahn er gefið að sök að hafa tekið þátt í kynlífsveislum með vændiskonum bæði í París og Lille í Frakklandi sem og í Washington í Bandaríkjunum.
Málið hefur verið til rannsóknar síðan í haust.

Lögreglan í Lille í Frakklandi mun nú rannsaka hóp af mönnum sem gefið er að sök að hafa flutt konur til borgarinnar frá Belgíu. Konurnar áttu að veita kynlífsþjónustu til auðugra viðskiptavina á hótelum borgarinnar. Meðal þeirra sem tengjast málinu munu vera háttsettir lögregluforingjar og heldri borgarar Lille og Dominique Strauss-Kahn.

Hvort hann verður ákærður eða ekki er þó enn óljóst. Hann hefur nú verið bendlaður við að hafa útvegað vændiskonurnar og hafa stundað fjárdrátt. Í yfirheyrslum í morgun mun hann hafa verið spurður að því hvort að konurnar hafi verið vændiskonur eða ekki og hvernig þær fengu greitt. Grunur liggur á því að peningarnir hafi komið úr sjóðum fyrirtækis í Frakklandi sem er í eigu vinar Strauss-Kahn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?