Hlynur Jónsson,formaður slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans segir að Dróma hafi aðeins fengið veður af fimm kvörtunum vegna ósáttra skuldara og þær kvartanir hafi verið afgreiddar strax. Hann gerir athugasemdir við að Dróma hafi ekki borist fleiri kvartanir, séu þær eins margar og umfjöllun síðustu daga hafa látið í veðri vaka. Þetta kom fram í Kastljósi kvöldsins, en Hlynur var gestur þar.
Mikið hefur verið fjallað um Dróma hf undanfarið, en Drómi hf. sér um að innheimta lán hjá þeim sem voru í viðskiptum við SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankann. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að hjá Fjármálaeftirlitinu séu til athugunar nokkur erindi sem borist hafa varðandi starfshætti Dróma. Sagði Ríkisútvarpið frá því að ýmist sé um að ræða kvartanir eða fyrirspurnir þar sem fjallað er um endurútreikninga lána, samskipti, upplýsingagjöf og verðmat fasteigna.
Hlynur segir að Hagsmunasamtök Heimilanna og Árni Páll Árnason fyrrverandi viðskiptaráðherra hafi beinlínis óskað eftir kvörtunum gegn fyrirtækinu. Jóhannes Kr. Kristjánsson, fréttamaður Kastljóss, benti á að mikill fjöldi af kvörtunum hefði borist bæði Kastljósi og Umboðsmanni skuldara eftir umfjöllun Kastljóss. Hlynur segir að Drómi geti ekki brugðist við slíkum kvörtunum komi þau ekki inn á borð til fyrirtækisins.
Hlynur segir að Arion banki hafi ekki leitað til Dróma til að kaupa lánasafn Dróma, en Árni Páll Árnason fyrrverandi efnahags og viðskiptaráðherra greindi frá því í gær að hann hefði lagt hart að Arion banka að kaupa lánasafnið. Árni Páll segir að það sé betra ef viðskiptabankar séu með lánasafnið þar sem það sé þeirra hagur að halda viðskiptavinum sem lengst, sem sé ekki hagur Dróma.
Kastljós kvöldsins er aðgengilegt hér



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
