Drómi hf. sér um að innheimta lán hjá þeim sem voru í viðskiptum við SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankann.
„Það var þarna einhver einstaklingur, ósáttur viðskiptavinur, sem kom heim til þessa bankamanns,“ segir Sigurbjörn Eggertsson, stöðvarstjóri og aðstoðaryfirlögregluþjónn, um atvik sem átti sér stað í gær. Veist var að einum forsvarsmanni Dróma hf, félags sem sér um að innheimta lán þeirra sem voru í viðskiptum við SPRON og Frjálsa fjárfestingabankann. Að sögn Sigurbjörns átti atvikið sér stað síðdegis í gær.
„Hann ýtti eitthvað við honum en það hlutust engin meiðsl af,“ segir Sigurbjörn.
Eins og fram kom á DV.is nú fyrir stundu kannaðist rannsóknarlögreglan ekki við umrætt mál. Skýringin á því er vafalaust sú að skýrsla hafi ekki verið gerð um málið því Sigurbjörn segir að fórnarlamb árásarinnar væri enn að íhuga hvort hann myndi kæra verknaðinn. Enginn var handtekinn vegna málsins.
Magnús Pálmarsson, talsmaður Dróma, sagði í samtali við DV fyrr í dag að það eina sem hann gæti sagt um atvikið væri að „alvarlegur atburður“ hefði átt sér stað.
Sjá einnig:



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
