ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Notaði munnhörpu sem hnúajárn í uppgjöri

Laus úr gæsluvarðhaldi
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:26 › 22. febrúar 2012

Hæstiréttur feldi úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra yfir karlmanni sem er grunaður um tilraun til manndráps á Þórshöfn fyrir stuttu. Hæstiréttur hafnar gæsluvarðhaldsbeiðninni þar sem ekki var farið fram á gæsluvarðhald vegna almannahagsmuna heldur rannsóknarhagsmuna. Maðurinn hafði áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. Febrúar nk. Átti hann að sæta einangrun í varðhaldinu.

Talið vera uppgjör vegna misnotkunarmáls
DV hefur áður fjallað um málið en málsatvik voru þau að karlmaður á áttræðisaldri sem varð fyrir hrottalegri árás heimili sínu á Þórshöfn, þann 11 febrúar síðastliðinn. Árásarmaðurinn er rúmlega tvítugur braust inn á heimili mannsins, sem er rúmlega sjötugur og veittist að honum. Í úrskurði Hæstaréttar kemur fram að maðurinn beitti meðal annars munnhörpu sem hnúajárni. Lögregla hefur sagt að um hafi verið að ræða uppgjörs vegna áratugagamals máls.
DV greindi frá því að fórnarlamb árásarinnar er talið hafa misnotað nokkrar konur sem bjuggu í bænum þegar þær voru börn og unglingar, samkvæmt heimildum DV er árásarmaðurinn tengdur þeim konum fjölskylduböndum.

Brotin munu vera áratugagömul en málið komst ekki upp fyrr en ein kvennanna steig fram fyrir nokkrum árum. Þá voru málin öll löngu fyrnd og samkvæmt heimildum var maðurinn aldrei kærður.

Tilraun til manndráps
Fórnarlamb árásarinnar hlaut heilablæðingu og mar eða bjúg á heila eftir högg mannsins. Hann er einnig kinnbeins, nef og rifbeinsbrotin. Mun árásin hafa verið hrottafengin og aðkoman mjög óhugguleg.
Árásarmanninum var sleppt eftir skýrslutökur, en þegar alvarleiki árásarinnar kom fram var ákveðið að fara fram á gæsluvarðhald, enda ljóst að hér hafi verið um tilraun til manndráps að ræða. Mun hin grunaði bera fyrir sig minnisleysi, en hann hefur þó játað að hafa brotist inn á heimili mannsins og að hafa ráðist á hann.

Árásarmaðurinn var þann 15 febrúar síðastliðinn dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás. DV greindi frá því fyrir skemmstu, en maðurinn var þá dæmdur fyrir að hafa í slagtogi við annan veist að manni með felgulykli. Líkamsárásinni var lýst sem hrottalegri.

Ekki rannsóknarhagsmunir
Í úrskurði Hæstaréttar segir að þar sem rannsóknin sé langt á veg komin því séu ekki lagaskilyrði fyrir því að halda manninum í varðhaldi vegna rannsóknarhagsmuna. Betra hefði verið að farið hefði verið fram á gæsluvarðhald vegna almannahagsmuna. Því er maðurinn laus úr gæsluvarðhaldi.

Tengdar fréttir
Réðust á mann með felgulykli

Líkamsárás: Uppgjör vegna misnotkunarmáls



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?