ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Lík fimm ára telpu fannst í Costa Concordia

Fundu átta lík í skipinu í morgun
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:29 › 22. febrúar 2012

Lík fimm ára telpu fannst í flaki Costa Concordia í dag. Ekki er vitað hvort foreldrar telpunnar komust lífs af í skipsskaðanum. Alls fundu leitarmenn átta lík í flakinu í dag. Leitarmenn hafa funduð sautján af þeim 32 sem saknað er. 4200 farþegar voru um borð í skipinu. Skipið hafði villst um fjóra kílómetra af leið þegar það sigldi á rif í nágrenni við Giglio-eyju þann þrettánda janúar síðastliðinn.

Byrjað var að dæla olíu úr skipinu fyrir tveimur vikum, en búist er við því að það geti tekið aðrar tvær vikur – alls voru um 2.300 tonn af eldsneyti í skipinu. Skipstjóri Costa Concordia hefur verið ásakaður um manndráp af gáleysi, en hann var einn af þeim fyrstu sem flúðu skipið eftir að það sigldi á rifið.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?