ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Kynferðisleg bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku birt

Tengist honum fjölskylduböndum
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, á samsettri mynd með Þóru Tómasdóttur, ritstýru Nýs Lífs.

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, á samsettri mynd með Þóru Tómasdóttur, ritstýru Nýs Lífs.

12:46 › 22. febrúar 2012
  • Forsíða Nýs Lífs sem kemur út á morgun.

    Forsíða Nýs Lífs sem kemur út á morgun.

Fjallað verður um bréfasamskipti Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, við stúlku á unglingsaldri í tímaritinu Nýju Lífi sem kemur út á morgun. Lengi hefur verið orðrómur um ósæmileg samskipti Jóns við stúlkuna, sem tengd er honum í gegnum fjölskyldu Bryndísar Schram, eiginkonu hans. Orðrómurinn hefur þó aldrei verið staðfestur. Samkvæmt heimildum DV var þó málið kært til lögreglu á sínum tíma, en látið niður falla.

Stúlkan er um þrítugt í dag en heimildirnar herma að bréfskriftirnar hafi hafist þegar stúlkan á unglingsaldri staðið yfir í nokkur ár.

„Við erum að fara að birta umfjöllun um Jón Baldvin á morgun, það er rétt,“ svaraði Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, aðspurð hvort bréfin muni varpa nýju ljósi á orðróminn. Blaðamaður spurði hvortbréfin sem blaðið hyggst birta staðfesta að um ósæmilega hegðun hafi verið að ræða. „Það verður bara hver og einn að gera upp við sig.“

Nýtt Líf hefur lengi unnið að umfjölluninni. Samkvæmt heimildum DV verður allavega eitt bréf birt í heild en það vildi Þóra ekki staðfesta. Vitnað er í málið á forsíðu Nýs Lífs með fyrirsögninni: „Kynferðisleg bréf sem Jón Baldvin skrifaði unglingsstúlku.“
Jón Baldvin kannaðist ekki við umfjöllun Nýs Lífs, þegar DV leitaði til hans.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?