Maðurinn sem fór heim að heimili stjórnanda fjármálafyrirtækisins Dróma í gærkvöldi segir að ástæða heimsóknar sinna hafi verið sú að Drómi skuldi honum um 14 milljónir króna vegna þess að hann ofgreiddi lán.
Lánið hafði líkt og önnur lán tvöfaldast eftir hrunið og hann greitt það upp í topp. Hann segir að samkvæmt þeim dómum sem hafi fallið skuldi Drómi sér það sem hann ofgreiddi, en hefur ekki fengið jákvæð svör frá fyrirtækinu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar tvö.
Líkt og fram kom á vef DV í dag sagði Sigurbjörn Eggertsson, stöðvarstjóri og aðstoðaryfirlögregluþjónn, að yfirmaðurinn sem um ræðir hafi ekki hlotið nein meiðsl af. „Hann ýtti eitthvað við honum en það hlutust engin meiðsl af,“ segir Sigurbjörn. Ósátti viðskiptavinurinn mun hafa sjálfur farið á lögreglustöð og viljað gefa skýrslu, en gat það ekki þar sem forsvarsmaður Dróma hafði ekki sjálfur lagt fram kæru. Hann hefur þó gert það nú og hefur kært manninn fyrir húsbrot og líkamsárás. Í fréttum Stöðvar Tvö kom fram að viðskiptavinurinn ýtti við húsráðanda og sló hann í höfuðið.
Drómi hf. sér um að innheimta lán hjá þeim sem voru í viðskiptum við SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankann. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að hjá Fjármálaeftirlitinu séu til athugunar nokkur erindi sem borist hafa varðandi starfshætti Dróma. Sagði Ríkisútvarpið frá því að ýmist sé um að ræða kvartanir eða fyrirspurnir þar sem fjallað er um endurútreikninga lána, samskipti, upplýsingagjöf og verðmat fasteigna.
Sjá einnig:
Ráðist á starfsmann Dróma
Svona var árásin á starfsmann Dróma



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
