ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.7° 10m/s S

Jón Baldvin fer ekki fram á lögbann

Hefur ekki fengið nein svör frá Nýju Lífi
Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
18:07 › 22. febrúar 2012

Jón Baldvin Hannibalsson mun ekki fara fram á lögbann vegna umfjöllunar Nýs Lífs um kynferðisleg bréf sem hann er sagður hafa ritað til unglingsstúlku.

Nýtt Líf kemur út á morgun en í samtali við DV.is segir Jón Baldvin að hann muni ekki fara fram á lögbann, en vildi annars ekki tjá sig um málið.

Fyrr í dag kom fram að Jón Baldvin skrifaði ritstjóra blaðsins þar sem hann krafðist þess að sjá umfjöllunina og vildi fá að koma að sínum svörum í blaðinu. „Ég er búin að skrifa ritstjóranum og segja: „Sú staðreynd að það var ekki haft samráð við mig og engin tilraun gerð til að sannreyna sannleiksgildi ásakana sem kunna að vera í þessu viðtali, bendir til þess að eitthvað annað en sannleiksleit hafi verið höfð að leiðarljósi. Þess vegna krefst ég þess, í fyrsta lagi að sjá þetta áður en það birtist, og í öðru lagi að fá ráðrúm til að svara því í sama tölublaði,““ sagði Jón Baldvin.

Nú um sexleitið sagðist Jón ekki hafa fengið nein svör frá ritstjóra blaðsins, Þóru Tómasdóttur.

DV.is greindi frá því, fyrst fjölmiðla, að til stæði að birta bréfin í Nýju Lífi og staðfesti Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins það í samtali við vefinn. Hún vildi þó lítið gefa upp innihald umfjöllunnarinnar. Sjálfur kannaðist Jón Baldvin ekki við yfirvofandi umfjöllun þegar DV ræddi við hann fyrr í dag.

Fréttir af málinu:
Kynferðisleg bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku birt

Jón Baldvin: „Ég kannast við mikið fjölskylduböl“

Jón Baldvin setur fram kröfur vegna ásakana



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?