ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Jón Baldvin: „Ég kannast við mikið fjölskylduböl“

Kynferðislegt bréf til unglingsstúlku birt
13:11 › 22. febrúar 2012
Jón Baldvin segir Nýtt Líf ekki hafa haft samband við sig í tengslum við umfjöllunina.

Jón Baldvin segir Nýtt Líf ekki hafa haft samband við sig í tengslum við umfjöllunina.

DV hafði samband við Jón Baldvin Hannibalsson vegna umfjöllunar um samskipti hans við unglingsstúlku sem mun birtast í tímaritinu Nýtt Líf sem kemur út á morgun. Hann sagði tímaritið ekki hafa sett sig samband við sig í tengslum við umfjöllunina. „Ég veit bara ekkert um málið, það hefur enginn haft samband við mig um það.“

Jón Baldvin vildi ekki tjá sig um umfjöllina að svo stöddu þegar blaðamaður innti hann eftir viðbrögðum. „Ég ætla ekki að kommenta neitt á þetta fyrr en ég sé þessi ósköp.“

Aðspurður hvort hann hefði sent umræddri stúlku bréf, játaði hann því hvorki né neitaði. „Ég kannast við mikið fjölskylduböl í minni fjölskyldu sem ég hef yfirleitt ekki rætt og ætla ekki að ræða að svo stöddu.“

Fleiri fréttir af málinu:
Kynferðisleg bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku birt



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?