ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Forsætisráðherrafrú leitar réttar síns

Dagblað hleraði talhólf hennar
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:24 › 22. febrúar 2012
Blair leitar réttar síns

Blair leitar réttar síns Reuters

Cherie Blair, fyrrum forsætisráðherrafrú Bretlands, hefur höfðað mál vegna hlerana dagblaðsins sáluga News of the World á síma sínum. Um er að ræða hleranir á talhólfi Blair. Þetta er eitt af fjölmörgum málum sem hafa verið höfðuð gegn dagblaðinu, en í vor komst upp um hleranir þess. Í ljós kom að um áraraðir hafði blaðið hlerað síma og talhólf viðfangsefna sinna og þannig fengið mikilvægar upplýsingar fyrir fréttir sínar. Í einu tilfelli kann blaðið að hafa eyðilagt rannsókn lögreglunnar á týndri telpu þar sem blaðamaður fylgdist með talhólfi hennar. Blaðamaðurinn hafði eytt skilaboðum út af talhólfinu sem gaf foreldrum hennar og lögreglu falskar vonir um að stúlkan væri á lífi. Í kjölfarið hneykslisins ákvað Rupert Murdoch, eigandi þess, að hætta útgáfu blaðsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?