Jón Baldvin krefst þess að fá að svara ásökunum um kynferðibrot sem munu birtast í Nýju Lífi sem kemur út á morgun.
„Ég er búin að skrifa ritstjóranum og segja: „Sú staðreynd að það var ekki haft samráð við mig og engin tilraun gerð til að sannreyna sannleiksgildi ásakana sem kunna að vera í þessu viðtali, bendir til þess að eitthvað annað en sannleiksleit hafi verið höfð að leiðarljósi. Þess vegna krefst ég þess, í fyrsta lagi að sjá þetta áður en það birtist, og í öðru lagi að fá ráðrúm til að svara því í sama tölublaði,““ segir Jón Baldvin Hannibalsson um sín næstu skref varðandi umfjöllun tímaritsins Nýs Lífs um kynferðisleg bréf hans til unglingsstúlku, sem kemur út á morgun.
DV.is greindi frá því, fyrst fjölmiðla, að til stæði að birta bréfin í Nýju Lífi og staðfesti Þóra Tómasdóttir, ritstjóri tímaritsins það í samtali við vefinn. Hún vildi þó lítið gefa upp innihald umfjöllunnarinnar. Sjálfur kannaðist Jón Baldvin ekki við yfirvofandi umfjöllun þegar DV ræddi við hann fyrr í dag.
Í samtali við mbl.is segir Þóra að síðasta bréfið hafi borist stúlkunni þegar hún var sextán ára gömul. Á þeim tíma var Jón Baldvin sendiherra. „Hún sakar hann um kynferðisbrot á nokkurra ára tímabili,“ er haft eftir Þóru á mbl.is.
Stúlkan er um þrítugt í dag en hún tengist Jóni Baldvini fjölskylduböndum í gegnum eiginkonu hans, Bryndísi Schram. Samkvæmt heimildum DV var málið var kært til lögreglu árið 2005 en það var látið niður falla.
Fréttir af málinu:
Kynferðisleg bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku birt
Jón Baldvin: „Ég kannast við mikið fjölskylduböl“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
