ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

„Eins og að vera í þvottavél“

Komst lífs af úr snjóflóði en fjórir vinir hennar fórust
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:00 › 22. febrúar 2012
Saugstad telur að sérútbúinn bakpoki hafi bjargað lífi hennar. Í pokanum var sérútbúinn loftpúði sem varð til þess að höfuð hennar fór ekki á bólakaf.

Saugstad telur að sérútbúinn bakpoki hafi bjargað lífi hennar. Í pokanum var sérútbúinn loftpúði sem varð til þess að höfuð hennar fór ekki á bólakaf.

Ég óttaðist að þetta gætu verið síðustu augnablikin í lífi mínu,“ segir skíðakonan Elise Saugstad sem komst lífs af úr snjóflóði á mánudag. Elise var við æfingar ásamt félögum sínum í Stevens Pass-fjallskarðinu í Washington í Bandaríkjunum þegar ósköpin dundu yfir. Fjórir létust í snjóflóðinu, þrír urðu undir flóðinu en sá fjórði féll fram af bjargbrún þegar flóðið hreif hann með sér.
Saugstad lýsti reynslu sinni í samtali við CBS-sjónvarpsstöðina og segir hún að það sé ótrúlegt að hugsa til þess hversu fljótt flóðið kom. „Félagi minn öskraði á mig að það væri að koma snjóflóð. Ég heyrði ekki neitt, ekki fyrr en flóðið hreif mig skyndilega með sér. Ég hugsaði fyrst að þetta væri smá spýja, en skyndilega áttaði ég mig á umfanginu,“ segir Saugstad en flóðið reyndist mjög umfangsmikið. Samkvæmt umfjöllun CBS-sjónvarpsstöðvarinnar kastaðist Saugstad 600 metra niður brekkuna. Hún segir að upplifunin hafi verið skelfileg. „Ég get ímyndað mér að þetta sé eins og að vera í þvottavél þar sem þú kastast í allar áttir og veist ekkert hvað snýr upp né niður,“ segir hún.

Saugstad telur að sérútbúinn bakpoki hafi bjargað lífi hennar. í bakpokanum var loftpúði sem hún lét blása út þegar hún áttaði sig á hvað var í gangi. Loftpúðarnir eru hannaðir þannig að þeir verja höfuð, háls og brjóst og eru þeim eiginleikum gæddir að geta skapað loftrými í kringum höfuðið ef það fer á kaf. Loftpúðarnir minnka einnig líkurnar á því að viðkomandi fari á bólakaf en þegar Saugstad stöðvaðist loksins var allur líkaminn á kafi í snjó en höfuðið eitt stóð upp úr snjónum. Félagar Saugstad sem létust voru ekki með umrædda bakpoka.
í umfjöllun CBS kemur fram að 30 manns láti lífið að meðaltali á hverju ári af völdum snjóflóða í Bandaríkjunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?