Jóhannes Kr. Kristjánsson spyrill Kastljóss í kvöld spurði Hlyn Jónsson, formann slitastjórnar SPRON og Frjálsa fjárfestingabanka, sem eru hluti af félaginu Dróma hf, hvort tímakaup hans sem formanns slitastjórnarinnar væri gott og hvort að það væri ekki hagur Hlyns að slitastjórnin starfaði sem allra lengst. „Er tímakaupið gott – að vera í slitastjórn?,“ spurði Jóhannes Kr.
Hlynur kvaðst ekki hafa komið í Kastljósið til að ræða launakjör sín en sagði. „Ég greiddi hátt í 600,000 krónur í skatt í síðasta mánuði. Það getur hver reiknað það fyrir sig.“ Jóhannes Kr spurði þá „Þú ert með mjög góðar tekjur er það ekki?“ en Hlynur sagði að það yrði hver að dæma fyrir sig.
Mikið hefur verið fjallað um Dróma hf undanfarið, en Drómi hf. sér um að innheimta lán hjá þeim sem voru í viðskiptum við SPRON og Frjálsa fjárfestingarbankann. Ríkisútvarpið greindi frá því í gær að hjá Fjármálaeftirlitinu séu til athugunar nokkur erindi sem borist hafa varðandi starfshætti Dróma. Sagði Ríkisútvarpið frá því að ýmist sé um að ræða kvartanir eða fyrirspurnir þar sem fjallað er um endurútreikninga lána, samskipti, upplýsingagjöf og verðmat fasteigna.
Jóhannes spurði Hlyn hvort ekki væri rétt að gott væri að komast í slitastjórnir og gott að halda því starfi þar sem peningarnir streymdu inn. „Þetta eru algjörlega staðlausir stafir,“ svarði Hlynur.
Jóhannes spurði hann hvort laun hans væru ekki mjög há og Hlynur svaraði: „„Get ekki svarað fyrir það. Þetta tekur mið af þeim töxtum sem gilda um laun lögmanna í samfélaginu.“
Kastljós kvöldsins er aðgengilegt hér



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
