Átján ára piltur var í gær handekinn og ákærður fyrir morð og nauðgun á tæplega 100 ára gamalli konu í bæ nærri Bergen í Noregi.
Á nýársdag ýtti Hilda Feste, 98 ára gömul norsk kona búsett í bænum Os í Hörðalandi, á neyðarhnapp sinn í svefnherberginu sínu. Þegar öryggisfyrirtækið, sem sér um að þjónusta eldriborgara með neyðarhnappa, reyndi að ná sambandi við Hildu heyrði starfsmaður aðeins einkennileg hljóð og reyndi því samstundis að ná sambandi við starfsfólk í þjónustuíbúðinni hennar. Nokkrum mínútum síðar braut hjúkrunarkona sér leið inn í íbúð hennar og við blasti skelfileg sjón. Hún kom að átján ára pilti, sem hafði nauðgað og myrt Hildu. Hann stóð yfir líki hennar. Augljósir ákverkar voru á höfði hennar. Hjúkrunarkona segir að aðkoman hafi verið hreint skelfileg.
Pilturinn lagði á flótta, en hann hefur nú verið handtekinn. Hann var einn af hundrað mönnum sem voru beðnir um að gefa lífssýni og skrásetja fingraför sín í tengslum við rannsóknina. Lífssýnin munu hafa komið upp um drenginn. Hann ber við minnisleysi og skilur ekkert í þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar. Vitni segjast hafa séð hann drukkinn við íbúð konunnar. Málið hefur vakinn mikinn óhug í Noregi, en lögreglan hefur unnið að rannsókninni sleitulaust síðan á nýársdag.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Í guðanna bænum ekki vinna í Eurovision“
Ljóst hverjir keppa í aðalkeppni Eurovision
Lífrænn matur gerir fólk sjálfumglaðara
Stökk fallhlífarlaus úr 750 metra hæð
Hitabylgja í Bretlandi
