ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Ákæran í Al-Thani málinu: Mikil leynd yfir aðkomu Ólafs

Thelma vissi ekki að Ólafur tengdist málinu
17:27 › 22. febrúar 2012
Blekkingarnar í Al-Thani málinu voru gríðarlegar. Þannig var aðkomu Ólafs haldið leyndri fyrir eina stjórnarmanni Q Iceland Finance, Telmu Halldórsdóttir.

Blekkingarnar í Al-Thani málinu voru gríðarlegar. Þannig var aðkomu Ólafs haldið leyndri fyrir eina stjórnarmanni Q Iceland Finance, Telmu Halldórsdóttir.

Í ákæru sérstaks saksóknara í Al Thani-málinu er sérstakur kafli þar sem fjallað er um dulda aðkomu Ólafs Ólafssonar að viðskiptunum. Talið er að þessi aðild hans varði við 117. grein laga um verðbréfaviðskipti og hafi verið blekking og sýndarmennska. Byggir þessi þáttur ákærunnar á því að Ólafur hafi í reynd verið aðili að viðskiptunum þó þetta hafi ekki verið opinbert.

Um þetta segir í ákærunni: ,,Í fjórða lagi hvíldi mikil leynd yfir aðild ákærða Ólafs að viðskiptunum. Mjög fáir starfsmenn Kaupþings vissu af þætti hans í viðskiptunum. Þá er það til marks um leyndina að aðkomu Ólafs að kaupunum var haldið leyndri fyrir fyrirsvarsmanni Q Iceland Finance, Telmu Halldórsdóttur."

Telma þessi var eini stjórnarmaður Q Iceland Finance, félagsins sem keypti bréfin í Kaupþingi sem fjórmenningarnir eru ákærðir fyrir að koma á laggirnar. Félagið var í eigu sjeiksins Al-Thani. Telma er meðeigandi á lögfræðiskrifstofunni Fulltingi ásamt meðal annarra Kristni Hallgrímssyni sem unnið hefur náið með Ólafi Ólafssyni í gegnum tíðina, meðal annars þegar S-hópurinn keypti Búnaðarbankann árið 2003. Telma var yfirheyrð hjá sérstökum saksóknara út af aðkomu sinni að málinu og fékk réttarstöðu grunaðs manns í rannsókninni. Í viðtali við DV árið 2009 sagði Telma að hún hefði tekið þátt í viðskiptunum vegna þess að hún var beðin um það. „Ég var bara beðin um þetta sem lögmaður. Fyrir bankahrun var mjög algengt að lögmenn væru beðnir um að sitja í stjórnum fyrir hönd kúnna. Þegar búið var að ákveða viðskiptin vantaði Íslending til að sitja í stjórn Q Iceland Finance og þá var ég beðin um þetta,“ sagði Telma sem ekki tók fram hver það var sem bað hana um að taka þátt í fléttunni.

Blekkingarnar í Al-Thani málinu virðast því einnig hafa náð til einhverra þeirra sem tóku þátt í fléttunni formlega, til grunlauss lögfræðings sem ekki fékk heildstæða vitneskju um eðli viðskiptanna og sem látin var bendla nafn sitt við hlutabréfaviðskipti sem bera það með sér að hafa verið stórfelld lögbrot. Ákæra sérstaks saksóknara virðist meðal annars sýna fram á þetta og hreinsar hún Telmu af þeim grun að hún hafi hugsanlega verið vitorðsmaður ákærðu í viðskiptunum. Telma virðist því einnig hafa verið blekkt.

Í ákærunni segir beinlínis að Ólafur hafi í reynd átt að fá stóran hluta þess hlutafjár sem sjeikinn keypti í Kaupþingi, eða rúmlega 2,50 prósenta hlut. Ólafur tók þátt í fjármögnuninni á kaupunum á helmingi hlutafjárins í gegnum félag sitt Gerland og síðar Q Iceland Finance og átti Ólafur að fá helminginn af mögulegum hagnaði vegna viðskiptanna. Samt var hann ekki skrifaður fyrir hlutnum. Ástæða þess er meðal annars sú að ef Ólafur hefði eignast þennan hlut hefði eignarhald hans í Kaupþingi farið yfir 10 prósent og því hefðu viðskiptin verið flöggunarskyld auk þess sem það leit betur út út á við að katarskur sjeik væri að kaupa allt þetta hlutafé í bankanum einn síns liðs. Ólafur var auk þess ekki kynntur opinberlega sem annar af kaupendum bréfanna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?