ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Réttindalaus með barn laust í framsæti á Suðurnesjunum

Ekki þurft að spyrja að leikslokum hefði orðið árekstur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:19 › 21. febrúar 2012

Lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af ökumanni við leikskóla fyrir nýliðna helgi. Í framsæti bílsins var einn fullorðinn farþegi, með lítið barn laust í fanginu. Það er Umferðarstofa sem vekur athygli á þessu máli en í tilkynningu frá stofunni kemur fram að afleiðingarnar hefðu orðið alvarlegar fyrir barnið hefði bíllinn lent í árekstri eða ökumaðurinn þurft að nauðhemla af einhverjum ástæðum.

Börn eiga að sitja í viðeigandi öryggisbúnaði sem hæfir þyngd þeirra.

Ökumaðurinn reyndist ekki vera með ökuskírteini og við athugun kom í ljós að hann hafði misst ökuréttindi fyrir nokkrum árum, en látið hjá líða að taka próf að nýju til að endurheimta þau. Ökumaðurinn á von á kæru og lögregla sendir almennt skýrslu um slík mál til yfirvalda barnaverndarmála, sem síðan ákveða hvort og þá til hvaða aðgerða sé rétt að grípa.

Í niðurstöðum könnunar á notkun öryggisbúnaðar fyrir börn, sem Umferðarstofa og fleiri hafa gert árum saman víða um land hafa átt sér stað miklar framfarir í notkun öryggisbúnaðar og til dæmis nutu tæplega 90% þeirra barna sem ástandið var kannað hjá á Suðurnesjum í könnun síðastliðið vor fullnægjandi öryggisbúnaðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?