ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

„Það lagðist mjög þungt í sjálfstæðismenn“

Flokkurinn klofinn í meirihlutaviðræðum í Kópavogi
Birgir Olgeirsson birgir@dv.is
12:30 › 2. febrúar 2012
Ármann Kr. Ólafsson.

Ármann Kr. Ólafsson.

„Það lagðist mjög þungt í sjálfstæðismenn,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, en á vef Ríkisútvarpsins var haft eftir Guðríði Arnardóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, að Sjálfstæðisflokkurinn væri klofinn í afstöðu sinni til meirihlutaviðræðna.

Meirihlutaviðræðunum var slitið í gær eftir að Ármann Kr. mætti einn sjálfstæðismanna til þeirra.
Ármann Kr. segir það hafa lagst mjög þungt í sjálfstæðismenn í Kópavogi að Vinstri grænir þyrftu að koma að meirihlutaviðræðunum með Samfylkingunni og Sjálfstæðismönnum. Sagði Ármann hluta sjálfstæðismanna hafa viljað ganga einungis til meirihlutaviðræðna við Samfylkinguna.

„Það voru margir sjálfstæðismenn sem fannst það sérstakt að ekki væri hægt að ræða meirihluta án þess að Vinstri grænir kæmu að viðræðunum. Ég óskaði eftir því á sínum tíma að ræða við Samfylkinguna eina,“ segir Ármann sem bætir við að það hafi verið mjög skýr krafa að hálfu Samfylkingarinnar að Vinstri grænir kæmu að meirihlutaviðræðunum.

„Það var niðurstaðan sem þá lá fyrir,“ segir Ármann. „Við gátum myndað góðan meirihluta bara með Samfylkingunni, þá hefðum við verið með sjö manns í meirihluta, og það var mjög sérstakt að reyna það ekki fyrst.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?