Öllu starfsfólki Herjólfs hefur verið sagt upp störfum í ljósi þess að núgildandi samningur Eimskips og Vegagerðarinnar um rekstur skipsins rennur út í lok apríl næstkomandi.
Samkvæmt frétt á vef Eyjafrétta er um að ræða 40 manns.
Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri Herjólfs í Vestmannaeyjum, segir í samtali við Eyjafréttir að einni hafi verið sagt upp öllum samningum við birgja og þjónustuaðila sem taki gildi 1. maí næstkomandi.
„Ríkið stefnir að því að bjóða verkefnið út á næstu vikum með það fyrir augum að nýr samningur taki gildi 1. maí 2012 og gildi þar til ný ferja verður tekin í notkun árið 2015,“ segir Gunnlaugur í samtali við Eyjafréttir. Þetta setji stafsmenn í erfiða stöðu og skapi óöryggi. Viðurkennir rekstrarstjórinn að hann hafi áhyggjur af því að rót komist á þann góða hóp sem þarna hefur starfað vegna óvissunnar.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
