ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Nemandi hljóp á hurð og hlaut örorku

Fjarðabyggð ekki skaðabótaskyld
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:52 › 2. febrúar 2012
Pilturinn fékk skaðabótaskyldu Fjarðarbyggðar ekki samþykkta fyrir Hæstarétti. Hann hljóp á hurð, skarst er gler hennar brotnaði og hlaut varanlega örorku.

Pilturinn fékk skaðabótaskyldu Fjarðarbyggðar ekki samþykkta fyrir Hæstarétti. Hann hljóp á hurð, skarst er gler hennar brotnaði og hlaut varanlega örorku.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Fjarðabyggð bæri ekki skaðabótaábyrgð vegna slyss sem varð í Grunnskólanum á Eskifirði árið 2007. Slysið varð með þeim hætti að piltur, sem þá var nemandi við skólann og á 16. Aldursári, var í kapphlaupi við skólafélaga sinn um gang skólans. Slík var ferðin á piltinum að hann náði ekki að stöðva sig og hljóp á hurð í skólanum. Gler hurðarinnar brotnaði við höggið og skarst pilturinn töluvert.

Niðurstaða mats læknis á piltinum var að hann hefði hlotið 30 prósent varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyssins.
Pilturinn höfðaði mál og taldi að í hurðinni hefði átt að vera öryggisgler eða að líma hefði átt á glerið sjálflímandi öryggisfilmu. Krafðist hann að viðurkennd yrði skaðabótaskylda Fjarðarbyggðar.

Hæstiréttur, líkt og héraðsdómur áður, komst að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið skylt að hafa öryggisgler í hurðinni eða plastfilmu á glerinu. Ekki yrði séð að Fjarðarbyggð hefði brotið gegn ákvæðum laga um grunnskóla líkt og lögmaður piltsins vildi meina.

Hæstiréttur komst að slysið hefði orðið vegna aðgæsluleysis piltsins en ekki vegna atvika, eða athafna/athafnaleysis Fjarðarbyggðar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?