ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Meirihlutinn með sprungna silíkonpúða

Ómskoðanir á brjóstum PIP kvenna hafnar
12:50 › 2. febrúar 2012

„Það virðist vera þannig að meirhluti kvenna sem gengur þarna inn er með sprungna púða,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, sem fer fyrir hópmálsókn tuga kvenna sem eru með PIP silíkonpúða í brjóstunum. Ómskoðanir á brjóstum kvennanna hófust á leitarstöð Krabbameinsfélagsins morgun og ljóst er að ótti margra þeirra um leka púða var á rökum reistur.

Að sögn Sögu hafa um þrjátíu konur nú fengið staðfest að púðarnir leki, en einhverjar þeirra leituðu til læknis að eigin frumkvæði. Alls eru rúmlega fjögurhundruð konur með PIP púða í brjóstunum.
Í aðgerðaráætlun stjórnvalda sem velferðarráðuneytið gaf út vegna málsins um miðjan janúar var gert ráð fyrir að skipta þyrfti um púða hjá að mesta lagi þrjátíu konum. En aðeins stendur til að skipta um leka púða.

Saga segir ljóst að eins og staðan er í dag, aðeins nokkrum klukkutímum eftir að ómskoðanir hófust, þá verði konurnar miklu fleiri en þrjátíu. „Miðað við þennan fjölda og hlutfall þeirra sem eru með rofna púða, þá finnst manni ótrúlegt ef að þeir ætla ekki að skipta um púða hjá öllum konunum,“ segir Saga.

Í leiðbeiningum sem konum með PIP hafa borist frá landlæknisembættinu er tekið fram að það sé ákvörðun hverrar og einnar konu hvort hún fái sér nýja púða eða ekki.
Saga segir orðalagið þó mjög loðið og í raun ekki ljóst hvort konunum standi það yfir höfuð til boða að fá nýjar fyllingar og hvort það verði þeim þá að kostnaðarlausu.

Hún kannaði málið því betur fyrir skjólstæðinga sína og fékk mjög misvísandi svör. Hjá landlæknisembættinu fengust þær upplýsingar að lýtalæknar á Landspítalanum teldu það ekki ráðlagt að setja inn nýja púða á sama tíma og gölluðu púðarnir væru fjarlægðir. „Það er merkilegt í ljósi þess að læknar sem starfa á einkastofum sem lýtalæknar, þeir eru allir tilbúnir til að framkvæma þetta í sömu aðgerð,“ segir Saga.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem hún hefur í höndunum kostar aðgerð þar sem skipt er um púða á bilinu 450 til 620 þúsund.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?