ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.2° 10m/s S

Lúxusvilla Hannesar seld

Átti að kosta 190 milljónir

Fjölnisvegur ellefu sem var í eigu Hannesar Smárasonar / Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

DV fjallaði um Fjölnisveg ellefu þann 23 janúar síðastliðinn

Hér má sjá eitt af þremur baðherbergjum hússins. Það er einstaklega rúmgott./ Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

Eignin er skráð átta herbergja en þrjár samliggjandi stofur eru þar á meðal./ Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

Ekkert hefur verið til sparað þegar eldhúsið var endurnýjað/ Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

Stórglæsilegt fataherbergi. Voldugur peningaskápur er felldur inn innréttinguna, sem eflaust hefur verið fullur af verðmætum á hér áður fyrr./ Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:18 › 2. febrúar 2012
  • DV fjallaði um Fjölnisveg ellefu þann 23 janúar síðastliðinn

    DV fjallaði um Fjölnisveg ellefu þann 23 janúar síðastliðinn

  • Hér má sjá eitt af þremur baðherbergjum hússins. Það er einstaklega rúmgott./ Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

    Hér má sjá eitt af þremur baðherbergjum hússins. Það er einstaklega rúmgott./ Mynd: FASTEIGNASALAN EIGNAMIÐLUN

Fara í myndagallerý →

Hús sem var eitt sinn í eigu fjárfestisins Hannesar Smárasonar hefur verið selt. Þetta kemur fram í Fréttatímanum, en húsið, Fjölnisvegur ellefu, var sett á sölu fyrir tveimur vikum og átti að kosta 190 milljónir. Ekki liggur fyrir hver keypti húsið eða hvað viðkomandi greiddi fyrir eignina.

Lúxusvilla

Í umfjöllun DV um málið 23 janúar síðastliðinn kom fram að húsið er sannkölluð lúxusvilla og ekki hefur væst um Hannes og fjölskyldu hans í húsinu sem er 435 fermetrar að stærð. Af myndum að dæma hefur þar ekkert verið til sparað í íburði, en húsið var endurnýjað fyrir nokkrum árum á einstaklega vandaðan hátt, að því er kom fram í lýsingu fasteignasölunnar á eigninni. Eignamiðlun kynnti Fjölnisveg sem eitt glæsilegasta einbýlishúsið í Þingholtunum og óhætt er að segja að eitthvað sé til í því.

Húsið skiptist í raun í tvær íbúðir, en aðalíbúðin á efri hæðum er tæpir 340 fermetrar. Á efri hæðunum eru fimm svefnherbergi, þar af hjónaherbergi og innangengt í glæsilegt fataherbergi, þar sem virðist hafa verið hugsað fyrir öllum smáatriðum. Í fataherberginu er peningaskápur þar sem eflaust hafa verið geymd ýmis verðmæti í góðærinu, svo sem skartgripir eða reiðufé. Húsið er skráð átta herbergja en þrjár samliggjandi stofur má finna í aðalíbúðinni. Þar fyrir utan er einnig stór sjónvarpsstofa á efstu hæðinni með glæsilegu útsýni yfir Reykjavík.

Í kjallara Fjölnisvegar 11 er glæsileg spa-aðstaða með stórum heitum potti, gufubaði og sturtuaðstöðu. Þar er jafnframt líkamsræktarherbergi svo Hannes hefur ekki þurft að svitna og púla á meðal almennings í líkamsræktarstöðvum til að halda sér í formi. Á stórri lóð hússins er einnig steyptur heitur pottur en tekið er fram að hann þarfnist lagfæringar. Ætla má að hann hafi staðið ónotaður og óvarinn fyrir veðri og vindum í nokkurn tíma.
Ljóst er að það er ekki á allra færi að eignast glæsihýsið við Fjölnisveg 11 þó eflaust hafi einhverjir litið á eignina einungis fyrir forvitnisakir.

Býr í Barcelona

Eignarhaldsfélagið Fjölnisvegur 9 sem hélt utan um fasteignir Hannesar, meðal annars að Fjölnisvegi 9 og 11, var tekið til gjaldþrotaskipta í júlí á síðasta ári og er það Þrotabú Fjölnisvegar 9 ehf. sem er nú er að selja glæsihýsið.
Þrátt fyrir að Landsbankinn hafi leyst til sín húsið í mars árið 2008 vegna skulda, bjó Hannes áfram í því. Samkvæmt upplýsingum frá bankanum var gerður við hann leigusamningur til allt að sex ára. Eitthvað er þó síðan Hannes flutti úr húsinu en það stendur nú autt en tignarlegt á besta stað í Þingholtunum. Sjálfur býr Hannes í Barcelona ásamt konu sinni.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?