ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Lögreglan leitar sprengjumanns: Hefur þú séð hann?

Þéttvaxinn og þunglamalegur í hreyfingum

Maðurinn sást hlaupa upp Hverfisgötuna

Sambærileg bifreið og maðurinn ók

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
18:24 › 2. febrúar 2012
  • Maðurinn sást hlaupa upp Hverfisgötuna

    Maðurinn sást hlaupa upp HverfisgötunaLögreglan á Höfuðborgarsvæðinu

Fara í myndagallerý →

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að karlmanni og hvítri sendibifreið (Renault Kangoo) í tengslum við rannsókn hennar á sprengjunni sem fannst neðst á Hverfisgötu í Reykjavík á þriðjudagsmorgun.

Maðurinn var klæddur í víðar, bláar gallabuxur (dökkar) og var með lyklakippu hangandi í buxunum. Hann var í dökkri úlpu og mögulega í hettupeysu innan undir. Maðurinn er þéttvaxinn og var þunglamalegur í hreyfingum. Óvíst er með aldur hans en líklega er maðurinn á miðjum aldri. Hann er talinn vera meðalmaður á hæð.

Rannsókn málsins er áfram í fullum gangi enda lítur lögreglan málið mjög alvarlegum augum. Lögreglu bárust fleiri ábendingar í gær eftir að fjölmiðlar birtu myndir af manninum og bílnum en þær voru teknar úr eftirlitsmyndavélum í miðborginni. Nú er unnið úr þessum ábendingum en lögreglan áréttar að enn er óskað eftir upplýsingum um fólk eða ökutæki á svæðinu þar sem sprengjan fannst á tímabilinu 6.30-7 á þriðjudagsmorgun. Þeim má koma á framfæri í síma 444-1000 en upplýsingar má einnig senda í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Sömuleiðis er hægt að koma nafnlausum ábendingum á framfæri í síma 800-5005.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?