„Þvoið yður án baðfata“ eða eitthvað þvílíkt stendur á flestum baðstöðum á Íslandi. Þetta þykir ferðamönnum flestum stórfurðulegt og eru vanir öðru og taka kynfæraþvott greinilega ekki eins alvarlega og Íslendingar gera. Iva Roze Skoch skrifar heila grein um kynfæraþvott og athöfnina sem fylgir því að fara í sund á Íslandi hjá veftímaritinu Global Post. Skoch er bandarískur blaðamaður sem lýsir reynsluheimi ferðamanns á baðstöðum á Íslandi á vefsíðunni.
Skoch fjallar um leiðbeiningarspjaldið sem er sundlaugargestum á Íslandi vel kunnungt en þar kemur fram hvaða líkamsparta skal skúra vel og vandlega áður en gestir stinga sér til sunds. Skoch greinir frá því að íslenskur vinur hennar hafi spurt hvers vegna Bandaríkjamenn þverneiti að þvo sér naktir og hafi bent á að það sé ekki vel til verksins vandað ef fólk þvoi sér í baðfötum.
Skoch reyndi að segja viðkomandi að það þyki einfaldlega ekki við hæfi að flagga nekt á baðstöðum í Bandaríkjunum og að margir séu mjög meðvitaðir um líkama sinn. Íslendingurinn á að hafa tekið þessu sem kaldhæðni og ekki skilið að Bandaríkjamenn væru lítið fyrir nekt.
Þegar Skoch kom í kvennaklefann hafði hún tekið ákvörðun um að taka á nektinni og þvættinum með hugrekkinu harðákveðin í að þvo sér hátt og lágt.„Þegar ég kom í kvennaklefann var ég staðráðin í því að þvo mér rétt fyrir sundið. Allsnakin og með þéttu handtaki. Þegar ég opnaði skápinn minn blöstu leiðbeiningarnar aftur við mér: „Þvoðu þér nakin“ skrifar hún og bendir á að leiðbeiningarnar séu á nokkrum tungumálum og nákvæmlega sé lýst hvar eigi að þvo sér. En það var ekki nóg að hafa leiðbeiningar. Heimamenn fylgjast vel með hvernig að þessu er staðið segir Skoch.
„Og ég skal sko segja ykkur það – heimamenn fylgjast vel með. Þó ekki með nektinni. Sem betur fer eru þeir af öllum stærðum og gerðum þarna líka. En þeir fylgjast vel með því að þú þvoir alla réttu líkamshlutana og takir ekki með þér neinar hryllilegar, erlendar bakteríur í sundlaugina þeirra. Íslendingar taka kynfæraþvott mjög alvarlega. Þetta er margra mínútna helgisiður sem íbúar New York myndu aðeins framkvæma fyrir æsilegt stefnumót. Og þeir myndu aldrei gera það á almannafæri,“ skrifar hún. „Ef þú ætlar að heimsækja þetta stórkostlega land, vertu þá viðbúinn.“


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
