ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Húsleit hjá KPMG vegna Milestone

Þrír í skýrslutöku hjá saksóknara
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:38 › 2. febrúar 2012
Karl Wernersson

Karl Wernersson

Starfsmenn sérstaks saksóknara gerðu í dag húsleit hjá endurskoðunarfyrirtækinu KPMG vegna fjárfestingarfélagsins Milestone og tengdra félaga. Í kjölfarið fóru þrír starfsmenn í skýrslutöku hjá embættinu. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar tvö.

Húsleitin fór fram í morgun í höfuðstöðvum KPMG í Borgartúni og var sérstakur saksóknari að leita að gögnum tengdum Milestone en Milestone er í slitameðferð. Milestone var í eigu bræðranna Steingríms og Karls Wernerssona. Forstjóri KPMG, Sigurður Jónsson segir að KPMG geri allt til að aðstoða embætti sérstaks saksóknara, en það geti verið erfitt þar sem fyrirtækið er bundið trúnaði viðskiptavina sinna. Því þurfi úrskurð til þess að hægt sé að afhenda embættinu gögn. Ekki liggur fyrir hversu langt rannsókn embættis sérstaks saksóknara er komin að því er kom fram í fréttum Stöðvar tvö



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?