„Það þýðir ekkert að breiða yfir hlut sem var arfa vitlaus í upphafi,“ segir Guðmundur Oddur Magnússon. Mynd DV/ Sigtryggur Ari Jóhannsson.
„Þetta er eins og að moka skítnum undir teppið,“ segir Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við Listaháskólann, um límmiða sem Já.is lét framleiða fyrir notendur símaskrárinnar sem vilja hylja Egil Einarsson sem prýðir forsíðu símaskrárinnar.
„Það þýðir ekkert að breiða yfir hlut sem var arfa vitlaus í upphafi. Þú lagar hann ekkert með því að moka honum undir teppið. Þú getur trúað því sjálfur að allt sé orðið hreint hjá þér en það er ekki farið,“ segir Guðmundur Oddur, betur þekktur sem Goddur.
Þegar Goddur er spurður hvort það hefði verið betra fyrir fyrirtækið að sleppa því að láta framleiða þessa límmiða segir hann: „Nei, það sem hefði verið best fyrir þau væri að biðjast afsökunar á þessu öllu saman og viðurkenna mistök. Þetta er týpísk ábreiða yfir mistök. Þær hreinlega viðurkenna það að það sé eina leiðin út úr þessu,“ segir Goddur um málið.
Sjá einnig:
Forstjóri Já.is: „Erum ekki að taka efnislega afstöðu“
Bjóða upp á límmiða til að fela Egil á símaskránni


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
