ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Dularfull hnífstunguárás

Ætluðu að ganga á milli en voru stungnir
14:58 › 2. febrúar 2012
Dularfull hnífstunguárás í Lindahverfi.

Dularfull hnífstunguárás í Lindahverfi.

Á miðnætti á laugardag komu tveir tvítugir strákar á slysadeildina með áverka eftir eggvopn. Lögreglan var kölluð á vettvang og ræddi við þá.

Sögðust þeir hafa verið á gangi frá Players og inn í Breiðholt. Á leiðinni, einhvers staðar í Lindahverfi, hefðu þeir gengið fram á óhugnanlegt atvik þar sem þrír, fjórir menn réðust saman á einn mann. Þeir hefðu ætlað að ganga á milli og skakka leikinn en það hefði ekki farið betur en svo að þeir voru sjálfir stungnir.

Annar var með áverka á bakinu, nánar tiltekið á herðablaðinu, og þurfti að sauma sex spor. Hinn var með stungusár á hendinni og þurfti að sauma fjögur spor í hann. Bættu þeir því síðan við að árásarmennirnir hefðu hlaupið í burtu og fórnarlamb þeirra sömuleiðis.

Atvikið hefur hins vegar ekki verið tilkynnt lögreglu svo ekkert er vitað um þann sem þeir ætluðu að bjarga. Lýsingar á árásarmönnum eru einnig ónákvæmar og lítið sem ekkert er vitað um þá. Þá var eitthvað á reiki hvar atvikið átti sér nákvæmlega stað.

Rannsókn málsins stendur yfir en miðar hægt, enda lítið sem hægt er að byggja á. Það er hins vegar ljóst að einhver átök áttu sér stað.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?