„Hvert er siðferðilegt og samfélagslegt hlutverk fyrirtækja, hvort sem þau eru í almannaeigu eða einkaeigu? Hvaða máli skiptir lúkkið og ímyndin ef innihaldið er ekkert – eða í besta falli stórgallað – og innrætið afleitt?,“ spyr bloggarinn Lára Hanna Einarsdóttir en hún hefur sett saman myndband um Já.is. Myndbandið kallar hún : „Hann á erindi við þjóðina“ og vísar þar til ummæla Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, forstjóra Já.is þegar að Egil Einarsson var valinn til þess að vera forsíðuefni símaskrárinnar og meðhöfundur hennar.
Félag kvenna í atvinnurekstri, FKA, heiðraði Já.is í janúar og hlaut fyrirtækið verðlaunin Gæfuspor, en á árinu sagði Já.is upp átján konum á Akureyri og spyrja margir hvers vegna fyrirtækið fékk þessi verðlaun. Svör þeirra sem standa að FKA hafa verið sú að fyrirtækið hafi sýnt mikla arðsemi á árinu. En Lára Hanna spyr á bloggsíðu sinni „Ef það er gæfuspor að reka tugi kvenna úr vinnu til að eigendur fái meira í eigin vasa má sjálfsagt líta þannig á það.“
Hér fyrir ofan má sjá myndbandið sem Lára Hanna setti saman. Hér má nálgast blogg Láru Hönnu
Sjá einnig:
Forstjóri Já.is: „Erum ekki að taka efnislega afstöðu“
Bjóða upp á límmiða til að fela Egil á símaskránni


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
