ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

„Sonur minn varð reiður og hissa“

Móðir 15 ára drengs sem seldi sig í vændi ósátt við dóm sem féll á dögunum
Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
06:00 › 17. febrúar 2012
Móðir drengsins segir að dómurinn sendi þveröfug skilaboð.

Móðir drengsins segir að dómurinn sendi þveröfug skilaboð. Sviðsett mynd DV

„Sonur minn varð bæði reiður og hissa. Hann meðtók þetta ekki allt,“ segir móðir 15 ára drengs sem seldi sig í vændi á meðan hann var í mikilli fíkniefnaneyslu. Drengurinn glímir nú við alvarlegar afleiðingar af fíkniefnaneyslu og barnavændi.

Fyrrverandi kennari var í síðustu viku dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands fyrir að kaupa vændi af drengnum sem þá var 14 ára. Í helgarblaði DV er viðtal við móður drengsins en þar lýsir hún þeirri skoðun sinni að dómurinn sendi þveröfug skilaboð og af lestri hans að dæma megi ráða að það sé vændiskaupandinn sem sé fórnarlambið í málinu.

Netáskrifendur DV geta lesið greinina í heild sinni með því að smella á „Meira“ hér að neðan.

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?