ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Stöðva sölu á tóbakslíki

Íslensk Ameríska stöðvar sölu á tóbakslausri vöru sem ber hátt tóbaksgjald
21:34 › 16. febrúar 2012
Þó að Onico líti út eins og munntóbak inniheldur það ekkert tóbak. Varan er hugsuð fyrir þá sem vilja draga úr eða hætta neyslu á munntóbaki.

Þó að Onico líti út eins og munntóbak inniheldur það ekkert tóbak. Varan er hugsuð fyrir þá sem vilja draga úr eða hætta neyslu á munntóbaki.

„Við byrjuðum að selja þetta fyrir rúmri viku og þetta var komið inn á einhverja sölustaði. Við erum búnir að láta þá aðila vita og erum búnir að stöðva sölu á þessu tímabundið,“ segir Árni Ingvarsson, framkvæmdastjóri hjá innflutningsfyrirtækinu Íslensk Ameríska. Fyrirtækið hóf fyrir skemmstu innflutning á Onico, vöru sem svipar til munntóbaks en inniheldur ekkert tóbak eða nikótín. Þrátt fyrir það er varan flokkuð sem tóbakslíki hjá Tollinum og ber hún tóbaksgjald sem er 13,08 krónur á hvert gramm. Vegna þessa þarf varan að fara í gegnum Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sem annast sölu og dreifingu á tóbaki og vörum sem flokkaðar eru sem tóbakslíki líkt og Onico.

Bera einkenni tóbaks
DV fjallaði um aðra sambærilega vöru á dögunum, Kickup, sem Guðmundur Már Ketilsson og Heiðar Hallgrímsson hugðust flytja inn frá Svíþjóð. Varan var hins vegar stöðvuð í Tollinum fyrir skemmstu og fengu Guðmundur og Heiðar þau skilaboð að greiða þyrfti tóbaksgjald af vörunni þrátt fyrir að hún innihéldi ekkert tóbak eða nikótín.
Báðar eiga vörurnar það sameiginlegt að vera hugsaðar fyrir munntóbaksfíkla sem vilja draga úr eða hætta tóbaksneyslu. Innihald Kickup er að mestu byggt upp á vítamínum og steinefnum en Onico inniheldur að mestu hafra og kakó. Ástæðan fyrir því að vörurnar fara í umræddan tollaflokk er sú að þær bera öll einkenni tóbaks þrátt fyrir að innhald þeirra sé annað.
Í samtali við DV síðasta föstudag sagði Guðmundur að það muni líklega aldrei borga sig að flytja inn Kickup miðað við núgildandi tollalög. Gjaldið sem myndi leggjast ofan á hverja dós yrði 314 krónur miðað við það að hver dós er 24 grömm og 13,08 krónur leggjast ofan á hvert gramm. „Dollan myndi kosta vel yfir þúsund krónur en samt erum við að reyna að flytja vöruna inn með það að leiðarljósi að hjálpa fólki að hætta að taka í vörina,“ sagði Guðmundur í helgarblaði DV.

Hærri skattur en á tóbak
Þó svo að Íslensk Ameríska hafi stöðvað sölu á Onico eftir að Tollurinn setti sig í samband við fyrirtækið segir Árni að verið sé að vinna í því þessa dagana að ÁTVR taki vöruna í sölu og dreifingu. „Að sama skapi ætlum við í framhaldinu að skoða réttarstöðu okkar með þessa vöru,“ segir Árni en þeir Guðmundur og Heiðar sögðust einmitt í helgarblaði DV vera að skoða réttarstöðu sína.
Árni segir að tóbaksgjald, líkt og lagt er á Onico, skjóti svolítið skökku við. Bendir hann á að skattlagning á tóbakslausa vöruna sé jafnvel hærri en á tóbak. „Ef maður skoðar til dæmis skattlagningu á neftóbak þá er hún, ef ég man rétt, á milli sjö og átta krónur á gramm. En þessi vara ber yfir þrettán krónu gjald á hvert gramm. Maður á svolítið erfitt með að átta sig á samhenginu. Þetta er tóbaks- og nikótínlaus valkostur sem okkur finnst að ætti ekki að bera þessi háu gjöld.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?