ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Þjófar stálu öllu í Ljósmyndaskólanum

„Allur myndavélabúnaður okkar og skólans,“ segir Sissa ljósmyndari
13:34 › 16. febrúar 2012
Í gær var þessi stofa full af Apple-borðtölvum. Innbrotsþjófarnir hreinsuðu hér út.

Í gær var þessi stofa full af Apple-borðtölvum. Innbrotsþjófarnir hreinsuðu hér út. Mynd: DV/Sigtryggur Ari

  • Brotin rúða í hurð og leiðin var greið.

    Brotin rúða í hurð og leiðin var greið.Mynd: DV/Sigtryggur Ari

  • Tjónið er gríðarlegt. Sissa segir þau þó vera tryggð.

    Tjónið er gríðarlegt. Sissa segir þau þó vera tryggð.Mynd: DV/Sigtryggur Ari

Fara í myndagallerý →

„Það er synd að einhver þurfi að lifa á einhverju svona,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Sissa ljósmyndari, skólastjóri Ljósmyndaskólans að Hólmaslóð í Reykjavík. Óprúttnir aðilar brutust þar inn í nótt og létu greipar sópa. Þjófarnir hreinlega tæmdu skólann af öllum verðmætum.

Að sögn Sissu hurfu þarna á einu bretti 20 Apple-borðtölvur skólans, stórt safn myndavéla og linsur og skjávarpi.

„Það var greinilega unnið mjög hratt. Það eru allar tölvur teknar úr sambandi og allt annað skilið eftir. Skjávarpar voru rifnir niður. Maður sér hvernig það var sópað úr hillum þar sem myndavélar eru og undir þetta allt saman notaðar töskur sem voru inni í tækjaherbergi hér.“

Það er auðséð að fjárhagslegt tjón af þessu innbroti er umtalsvert en sárast segir Sissa að sé að sjá á eftir þeim hlutum sem þau hafi bundist tilfinningaböndum.

„Skólinn er búinn að vera starfræktur í 15 ár og ég er búin að vera ljósmyndari í 30 ár og Leifur [framkvæmdastjóri Ljósmyndaskólans] í 35 þannig að þetta er allur myndavélabúnaður okkar og skólans.Þannig að það er voða mikið tilfinningadót þarna líka. Gamlar vélar með sál. Ég átti þarna vélar og linsur sem ég er búin að vinna með í gegnum tíðina sem er bara sál í. Það dó samt enginn og við erum tryggð og við stöndum bara upp aftur og höldum áfram.“

Aðspurð hvort innbrotið hafi áhrif á skólastarfið segir Sissa að hún eigi ekki von á því að svo verði. Það sé lokað í dag og svo sé ekki fyrirhugaður kennsludagur á morgun heldur svokallaður vinnudagur.

„Það er svo mikið hjarta í þessum skóla að nú tökum við höndum saman. Ég vil líka þakka þann stuðnings sem við höfum fengið og kveðjurnar. Það eru allir að reyna að leita og finna þetta. Ef einhver er með einhverjar vísbendingar má hann koma þeim á framfæri við lögreglu eða okkur.“




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?