Ármann Kr. Ólafsson, nýskipaður bæjarstjóri í Kópavogi, losaði sig við barta sem hann skartaði á blaðamannafundi í síðustu viku þegar nýr meirihluti Sjálfstæðismanna, Framsóknar og Y-lista Kópavogsbúa var kynntur til sögunnar.
Það er Fréttatíminn sem greinir frá þessu en þar segir Ármann frá því að börnin hans tvö hefðu beðið hann daglega um að raka bartana af en Ármann segist hafa byrjað að safna þeim þegar meirihlutinn féll og lofaði sjálfum sér að þeir myndu vera þar, þar til meirihluti yrði myndaður í Kópavogi.
Á meðan eiginkona Ármanns tók þessu með ró þá greinir Ármann Kr. Frá því að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði ítrekað sagt Ármanni að raka bartana af. „Hann sagðist hafa fengið verkefni frá Valhöll að losa mig við bartana. Það væri hreinlega frá æðstu stöðum,“ segir Ármann í samtali við Fréttatímann.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Taílendingar sólgnir í pylsur
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
