ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.4° 10m/s S

Ekki kynferðisleg áreitni að fara nakinn í heitan pott

Hæstiréttur snýr dómi héraðsdóms vegna starfsmannaferðar Isavia
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:13 › 16. febrúar 2012

Hæstiréttur sýknaði í dag fyrirtækið Isavia af kröfu konu sem starfaði hjá fyrirtækinu. Í Héraðsdómi Reykjaness var konunni dæmdar átján hundruð þúsund krónur í bætur og ógreidd laun vegna málsins. Konan sagðist hafa orðið fyrir kynferðislegar áreitni af hálfu háttsetts yfirmanns innan Isavia.Þá sagði konan að breytingar hefðu verið gerðar á starfi sínu þannig að hún gæti ómögulega sinnt því.

Fékk hún því átján hundruð þúsund krónur dæmdar í bætur hjá Héraðsdómi Reykjaness en Hæstiréttur sneri þeim dómi við í dag. Hæstiréttur hafnaði því að að hegðun yfirmannsins hafi verið kynferðisleg áreitni í garð konunnar, út frá skilgreiningu hugtaksins samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt karlar og kvenna.

Forsaga málsins er sú að konan fór ásamt yfirmanni sínum, framkvæmdastjóra öryggissviðs Keflavíkurvallar, og yfireftirlitsmanni fyrirtækisins í sumarbústað í Grímsnesi. Tilgangur ferðarinnar, sem var farin í mars árið 2009, var að fara yfir breytingar í starfi hennar sem áttu meðal annars að fela í sér aukna ábyrgð.

Eftir að hafa lokið störfum fóru framkvæmdastjórinn og yfireftirlitsmaðurinn í heitan pott sem var við bústaðinn. Framkvæmdastjórinn reyndi ítrekað að fá konuna í pottinn en þar sem hún var ekki með sundföt neitaði hún. Fyrir áeggjan mannanna fór hún með stól út til að sitja við pottinn en tók þá eftir því að framkvæmdastjórinn var nakinn í pottinum.

Hæstiréttur taldi einnig að ekki hafi verið sýnt fram að konan hafi verið beitt óréttlæti í starfi með tilliti til starfsöryggis og starfskjara.

Sjá einnig:
Isavia dæmt til að greiða bætur vegna kynferðislegrar áreitni: Kemur á óvart



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?