Hæstiréttur staðfesti í dag dóm yfir Birki Árnasyni, 25 ára, og dæmdi hann til fimm ára fangelsisvistar. Þetta er í annað sinn sem Birkir er dæmdur fyrir nauðgun í Hæstarétti.
Að þessu sinni hlaut Birkir fimm ára fangelsisvist og var dæmdur til þess að greiða fórnarlambi sínu 1.500.000 króna greiðslu í skaðabætur. Ákæruvaldið hafði farið fram á refsiþyngingu.
Hæstiréttur segir að árás Birkis hafi verið einstaklega ruddaleg og gróf. Hann sé sekur um grófa og ruddalega árás á brotaþola, líkama hennar og kynfrelsi.
Eins og áður sagði var Birkir einnig dæmdur í fangelsi árið 2006. Þá var hann tvítugur og hlaut eins og hálfs árs dóm fyrir að hafa nauðgað stúlku á Höfn í Hornafirði. Upphaflega var Birkir dæmdur í tveggja ára fangelsi, en Hæstiréttur mildaði dóminn í átján mánuði.
Sérstaklega hrottaleg nauðgun
DV greindi frá málinu í haust, en nauðgunin átti sér stað í sumar. Málsatvik í Vestmanneyjum voru sú að stúlkan var á leið heim af þjóðhátíð klukkan fimm á morgni sunnudagsins þegar hún ákvað að fara á klósettið og fara svo heim. Þegar hún gekk út af kamrinum greip Birkir hana og neyddi hana aftur inn á salernið. Þar reyndi hann að afklæða hana en hún náði að rífa sig lausa og komst út af kamrinum. Birkir náði að fara innan á nærbuxur hennar með annarri hendi áður en hún náði að hlaupa.
Hún var kominn nokkra metra frá kamrinum en Birkir hljóp hana uppi, greip í handlegg hennar og sagði við hana: „Þetta hefðir þú ekki átt að gera, þú hefðir betur sleppt þessu.“
Í kjölfarið dró hann stúlkuna aftur inn á kamarinn. Þar kom hann fram vilja sínum við stúlkuna um stund, en hún barðist mikið um og segir sjálf að mikil átök hafi átt sér stað.
„Kvaðst brotaþoli hafa barist um og hafi orðið slagsmál inni á klósettinu og hafi hún verið marin á fæti eftir þetta og eldrauð á handleggjum allt niður frá öxlum. Henni hafi svo tekist á einhvern óskiljanlegan hátt að losa sig, sennilega með því að nota vinstri höndina, komist út af salerninu og hlaupið í burtu.“
Stúlkan náði þá að flýja í veitingatjald sem var nærliggjandi. Þar faldi hún sig á bak við gæslumenn. Birkir fylgdi henni eftir og þegar hann kom að gæslumönnunum greip hann um klof sitt og spurði „villtu lim?“. Gæslumenn sögðu augljóst að stúlkan hefði verið mjög óttaslegin.
Stúlkan sagði að fólk hefði orðið vitni að því þegar Birkir færði sig inn á útikamarinn, gegn vilja hennar í fyrra skiptið. Hún gat ekki sagt til um það hvort mikill fjöldi hefði séð þau fara þangað inn í síðara skiptið.
Stúlkan hefur átt mjög erfitt eftir nauðgunina, hún er tilfinningalega óstöðug og hefur þjáðst af áfallastreituröskun í kjölfar nauðgunarinnar. Sérfræðingur á neyðarmóttöku vegna nauðgana sagði að stúlkan hefði átt mjög erfitt þegar hún kom þangað til skoðunar. Þá segir sálfræðingur að stúlkan hafi upplifað mikið öryggisleysi og alls ekki þorað að vera ein.
Einbeittur brotavilji og ósannfærandi vitnisburður ákærða
Í dómi Héraðsdóms Suðurlands frá því í haust segir: „Er jafnframt óhjákvæmilegt að líta til hins einbeitta brotavilja ákærða sem birtist í þeirri háttsemi hans að draga brotaþola aftur með ofbeldi inn á kamarinn til að koma fram vilja sínum, eftir að hún hafði sloppið frá honum í hið fyrra sinni, en ákærða gat síst dulist það að athafnir hans allar og háttsemi gagnvart brotaþola voru ekki með hennar samþykki,“ segir í dómi Héraðsdóms Suðurlands. Þá taldi dómari einnig að framburður Birkis hefði verið ótrúverðugur. Framburður stúlkunnar hefði verið bæði einlægur og trúverðuglegur. Stúlkan hafi verið „hreinskilin með sína upplifun. Verið algjörlega ýkjulaus.“
Einnig segir: „Ákærði þykir ekki eiga sér neinar málsbætur, en hann hefur gerst sekur um mjög grófa og ruddalega árás á brotaþola, líkama hennar og kynfrelsi. Eru afleiðingar brots ákærða augljósar. Er jafnframt óhjákvæmilegt að líta til hins einbeitta brotavilja ákærða sem birtist í þeirri háttsemi hans að draga brotaþola aftur með ofbeldi inn á kamarinn til að koma fram vilja sínum, eftir að hún hafði sloppið frá honum í hið fyrra sinni, en ákærða gat síst dulist það að athafnir hans allar og háttsemi gagnvart brotaþola voru ekki með hennar samþykki.“


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
