ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Drakk eitur í réttarsal

Drakk eitrið stuttu eftir að hafa verið sakfelldur
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:25 › 16. febrúar 2012

Marin Stroia drakk það sem hann sagði vera eitur í dómssal og féll í gólfið á þriðjudag, nokkrum andartökum eftir að hafa verið sakfelldur.

Stroia þessi hafði hótað að skjóta sig í höfuðið í sama dómshúsi í Broward-sýslu, Bandaríkjunum, í janúar í fyrra.
Mari Stroia var á þriðjudag fundinn sekur um gáleysislega meðferð á skotvopnum þegar hann hótaði að skjóta sig í anddyri dómshússins 14. janúar í fyrra. Húsinu var lokað á stundinni þegar Stroia sýndi byssuna en það var dómarinn Joel T. Lazarus sem fékk hann af því að svipta sig lífi. Stroia stóð þá í forræðisdeilu.

Á þriðjudag skapaði hann mikinn usla í dómssal. Eftir að hann hafði verið fundinn sekur dró hann upp ómerkta flösku, drakk tæran vökva úr henni og greindi réttinum frá því að þetta væri eitur. Hann féll í gólfið stuttu síðar.
Sjúkraflutningsmenn fluttu Stroia úr dómshúsinu á börum.

Atvikið sem átti sér stað í janúar í fyrra leiddi í ljós ýmsa galla á öryggiseftirliti dómshússins, sem var hert eftir það.

View more videos at: http://nbcmiami.com.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?