Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að ástæða sé til að þakka þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og Pálma Haraldssyni fyrir að hafa fært íslensku þjóðinni verslanirnar Iceland. Með þeim sé hægt að greiða Icesave skuld Íslendinga upp í topp.
Bubbi skrifar þetta í Pressupistli en þar segir hann.: „Var að lesa á netinu að Landsbankinn væri að selja Iceland verslanirnar fyrir þrjú hundruð milljarða – já þrjú hundruð milljarða! Það er fínn peningur til að stoppa upp í Icesave gat þjóðarinnar. Ég held það sé full ástæða til að óska þeim Pálma Haraldssyni og Jóni Ásgeiri til hamingju með að hafa fært þjóðinni þessar verslanir. Ef þeirra hefði ekki notið við, værum við í skelfilegum Icesave vandræðum. Sennilega mun þetta mál leysa það í eitt skiptið fyrir öll.“
Bubbi segir að viðskiptatækifæri sem Pálmi og Jón Ásgeir hafi séð í verslunarkeðjunni Iceland hafi reynst gjöfult, þrátt fyrir að menn hafi talið að þeir væru að tefla djarft. „Jón Ásgeir náði í Malcolm Walker, þar sem hann sat heima hjá sér ærulaus í þunglyndi vegna rannsóknar sem hann sætti fyrir meint innherjasvik, sem svo síðar kom í ljós að áttu ekki við rök að styðjast.
Í Bretlandi er það svo að ef þú lendir í þesskonar hremmingum þá er ferillinn almennt búinn. Jón viss svo sem að Malcolm var stofnandi Iceland og trúði því að hann væri maðurinn sem gæti rifið fyrirtækið upp úr þeirri lægð sem það hafði verið í árin á undan. Á þeim tíma voru afar fáir sem trúðu því að það gæti gerst. Jón Ásgeir og Pálmi gáfu dauðann og djöfullinn í hvað hefðin sagði í Bretlandi,“ skrifar Bubbi. Hann þakkar góðu innsæi þeirra Jóns Ásgeirs og Pálma fyrir að Malcom Walker sé einn stöndugasti verslunarmaður Bretlands.
„Innsæi Jóns Ásgeirs og Pálma gerði það að verkum að í dag er Malcolm Walker einn stöndugasti verslunarmaður Bretlandseyja og virðist í gær hafa gengið frá kaupum á verslununum við slitastjórn Landsbankans og Glitnis. Verðmiðinn 300 milljarðar, 1.550 milljónir punda. Þetta er töluvert hærri upphæð en menn hafa hingað til talað um í þessu samhengi og ætti þetta að fara langt með að borga Icesave. Þetta heitir að veðja á réttan hest.“
Að lokum skrifar hann: „Hver hefði trúað því að vegna Pálma og Jóns Ásgeirs yrði Icesave reikningurinn svo til borgaður í topp, ja hérna maður.“


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
