„Ríkisstjórnin styðst við meirihluta á Alþingi, meðan svo er engin ástæða til að boða til kosninga,“ sagði Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, í Kastljósinu í kvöld þegar hann var spurður hvort að boða ætti til kosninga.
Árni var mættur í Kastljósið til að ræða dóm Hæstaréttar sem féll í gær sem kveður á um að lög sem kveða á um að seðlabankavextir gætu ekki verið afturvirkir ef skuldarar voru með fullnaðarkvittanir vegna gengistryggðra lána.
Það var Árni Páll sem setti fram lög eftir að Hæstiréttur dæmdi gengistryggð lán ólögleg. Lögin gengu út á að seðlabankavextir myndu gilda á slík lán við endurútreikning á þeim.
„Ríkisstjórnin lifir sínu lífi og ég sé ekki að þetta hafi nein áhrif á hana,“ sagði Árni Páll sem sagði að með lagasetningunni hefði verið haft í huga að baka ekki íslenska ríkinu bótaskyldu.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
