„Þetta var allt leikur og Roger Davidson vissi það“ segir Vickram Bedi, maðurinn sem er grunaður um að hafa, í slagtogi við Helgu Ingvarsdóttur, svikið 20 milljónir Bandaríkjadollara frá öldruðum og afar ríkum tónlistarmanni í Bandaríkjunum.
Málið komst í hámæli í nóvember árið 2010 þegar Vickram og Helga voru handtekin í Chappaqua og gefið að sök að hafa á sex ára tímabili svikið gríðarlega fjármuni af Davidson með farsakenndri lygasögu.
„Ég gerði ekkert til að svíkja fé frá Roger Davidson,“ segir Vickram Bedi í viðtali við vefsíðuna Lohud.com. Þar kemur fram að Vickram kemur fyrir dómara í dag.
Saksóknari segir að Vickram hafi sannfært Davidson um að Davidson væri í mikilli hættu þar sem að brotist hefði verið inn í tölvuna hans af tölvuþrjótum. Vickram átti tölvufyrirtækið Datalink Computer Services á þessum tíma og þangað mun Davidson hafa farið með tölvuna sína árið 2004.
Mun Vickram hafa sagt Davidson að tölvuþrjótar í Hondúras hefðu yfirtekið tölvuna og þar með gætu embættismenn þar stýrt henni og notað gögnin hans. Helga og Vickram gerðu því 10,9 milljóna dollara samning við Davidson þess efnis að þau tæku að sér að sjá um tölvuöryggi hans. Í hverjum mánuði tóku þau 16,000 dollara út af kreditkorti hans.
Þau voru svo handtekin í nóvember 2010 og játaði Helga mánuði seinna. Hún bíður nú dóms, en verður ekki dæmd fyrr en Vickram Bedi hefur verið dæmdur. Hann má búast við 25 ára fangelsisvist en alls óvíst er hvaða dóm Helga hlýtur.
Lögmaður Vickrams segir að Davidson hafi verið í höndum geðlækna og sálfræðinga um árabil, þar sem hann þjáist af ranghugmyndum. Til þess að róa taugarnar noti Davidson hlutverkaleiki og að Vickram og Helga hafi verið óafvitandi dreginn inn í einkennilegan heim Davidson.
Þegar Vickram hafi áttað sig á aðstæðum og vildi segja skilið við Davidson hafi tónlistarmaðurinn boðið þeim meiri pening. Til að verja sig og Helgu hafi Vickram því fengið Davidson til að skrifa undir pappíra þar sem skýrt kemur fram að Vickram myndi segja Davidson lygasögur.
Það var ekki fyrr en síðar sem Davidson vildi sjálfur segja skilið við parið en þá hafði hann tapað talsverðum fjármunum í fjárfestingum með Vickram. Lögfræðingur Vickram segir að Davidson hafi notað einkaspæjara til að hóta Vickram og öryggisfyrirtæki til að hóta og múta vitnum sem gerðu allt til að koma Vickram í klemmu. Þar á meðal á Helga Ingvarsdóttir að hafa fengið í sinn hlut 200,000 dollara fyrir aðstoð sína og upplýsingar um Vickram.
Lögfræðingur Davidson segir þetta vera örvæntingafulla leið Vickram Bedi til að komast undan fangelsisdómi. Eins og áður sagði kemur Vickram Bedi fyrir dómara í dag.
Tengdar fréttir
Vickram Bedi ákærður - Helga bíður dóms


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
