ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Slysaskot í kirkju: Prestsdóttir skotin í höfuðið

Maður var að sýna kærasta hennar byssuna inni í skáp
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:46 › 14. febrúar 2012
Grace Connection Church þar sem kirkjugestur skaut óvart prestsdóttur í höfuðið að lokinni messu.

Grace Connection Church þar sem kirkjugestur skaut óvart prestsdóttur í höfuðið að lokinni messu.

Prestsdóttir frá Lealman í Flórída liggur þungt haldin á gjörgæsludeild eftir að hafa verið skotin í höfuðið að lokinni messu á sunnudag.

Einn kirkjugestur, Moises Zambrana, hafði brugðið sér frá inn í skáp með skammbyssuna sína í félagi við tvo aðra. Hann var að sýna mönnunum nýju byssuna sína. En slysaskot hljóp af þegar Zambrana var að sýna mönnunum öryggiseiginleika byssunnar.

Kúlan fór í gegnum þunnan vegg skápsins og hæfði hina tvítugu prestsdóttur, Hönnuh Kelly, aftan í hnakkann.

Til að gera málið enn furðulegra þá er annar mannanna sem var að skoða byssuna með Zambrana inni í skáp, kærasti Hönnuh. Hann var að spá í að fá sér sambærilega 9 mm skammbyssu.

Zambrana hefur ekki verið kærður og segja rannsóknarlögreglumenn að hann hafi verið búinn að fjarlægja magasínið úr byssunni, en því miður hafi ein kúla setið eftir í hlaupinu.

Hér fyrir neðan má sjá frétt WTSP-fréttastofunnar í Tamba Bay um málið



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?