ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Ögmundur: „Gotcha“

Ósáttur við RÚV
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:34 › 14. febrúar 2012

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, skrifar greinar í dag í bæði Morgunblaðið og í Fréttablaðið er varða umfjöllun um hann sjálfan og lífeyrissjóðina á dögunum hjá fréttastofu RÚV. Fyrirsögn greinarinnar í Morgunblaðinu er : „Gotcha“ eða „Ég náði þér“, sem Ögmundur segir að hafi komið upp í hugann þegar að fréttastofa RÚV fjallaði um málið. Hann segir að augljóst sé að RÚV hafi talið sig vera að „ná honum.“

Í Morgunblaðið skrifar Ögmundur: „Fréttastofa Sjónvarps taldi sig hafa rekið endahnút á að sanna fyrir alþjóð að ég væri ósannindamaður, hefði farið með rangt mál í Kastljósþætti þegar ég kvaðst hafa einn við atkvæðagreiðslu árið 1996 andmælt lagaákvæði þess efnis að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (og nokkru síðar öllum lífeyrissjóðum) skyldi gert skylt að leita jafnan eftir hæstu ávöxtun fjármuna sinna.“ Ögmundur sat hjá í umræddi atkvæðagreiðslu.

Ögmundur hefur gagnrýnt fréttaflutning RÚV harðlega og segir að sér hafi þótt hann yfirborðskenndur og segir að hann eigi rétt á þeirri lágmarkskröfu að njóta sannmælis. Hann telur að RÚV hafi forherst við gagnrýni sína á málinu. Í Fréttablaðið skrifar Ögmundur:

„Vegna þessa fréttaflutnings mætti ég í Kastljósviðtal í Sjónvarpinu til að svara fyrir mig. Þar drýgði ég þá höfuðsynd að gagnrýna fjölmiðla fyrir skort á dýpt í fréttaflutningi um lífeyrismálin og stend ég við þá gagnrýni. Gagnrýnin féll í grýttan jarðveg og uppskeran varð sú ein að fréttastofan hefur lagst í miklar rannsóknir til að reyna að sýna fram á að ég hafi haft rangt við í þættinum,“ segir Ögmundur. Hann segist hafa leitað með þetta á síður dagblaðanna þar sem hann neiti að sitja undir því að fréttastofa Ríkisútvarpsins beri upp á sig lygar.

Hann segist hafa gert það eina rétta í stöðinni þegar umrædd atkvæðagreiðsla fór fram; að styðja hana ekki.

Grein Ögmundar í Fréttablaðinu má lesa hér.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?