ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Létu vita um háa lekatíðni PIP púða hérlendis

Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is
11:28 › 14. febrúar 2012

Lyfjastofnun hefur sent framkvæmdastjórn Evrópusambandsins upplýsingar um háa lekatíðni falsaðra PIP brjóstafyllinga hér á landi. Búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með slíkar fyllingar og hefur leki greinst í púðum hjá 71 konu eða um 68% þeirra sem hafa verið skoðaðar. Eftir því sem best er vitað hefur hvergi annars staðar verið ráðist í skipulega ómskoðun kvenna með PIP brjóstafyllingar. Samanburðarhæfar upplýsingar lekatíðni þeirra frá öðrum þjóðum eru því ekki fyrir hendi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Samkvæmt ákvörðun heilbrigðisyfirvalda stendur konum til boða að láta fjarlægja PIP brjóstafyllingar í aðgerð á vegum Landspítala en ekki verða settar inn nýjar fyllingar í þeirra stað. Í tilkynningunni segir að staðfest hafi verið að bólgusvörun er meiri við leka frá PIP brjóstapúðum en öðrum brjóstapúðum og brottnám þeirra því erfiðara vegna þess. Vegna bólgunnar sem myndast og áhrifa hennar á nærliggjandi svæði séu minni líkindi til þess að mögulegt sé að setja inn nýja púða um leið og PIP brjóstapúðarnir eru fjarlægðir.

Í tengslum við PIP brjóstapúðamálið hefur framkvæmdastjóri heilbrigðis- og neytendamála hjá Evrópusambandinu sent frá sér yfirlýsingu þar sem óskað er eftir tafarlausum aðgerðum af hálfu aðildarríkjanna til að styrkja framkvæmd og eftirlit með lögum Evrópusambandsins varðandi lækningatæki.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að íslensk heilbrigðisyfirvöld eru í beinum samskiptum við hlutaðeigandi yfirvöld og eftirlitsstofnanir í Evrópu og fylgjast grannt með þróun mála varðandi PIP brjóstafyllingarnar hjá öðrum þjóðum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?