Jónas Halldór Haralz, hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri, er látinn.
Jónas var 92 ára gamall, fæddur í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1938, stundaði nám í efnaverkfræði við Konunglega tækniháskólann í Stokkhólmi 1938-'40, nám í hagfræði, tölfræði, stjórnmálafræði og heimspeki við Stokkhólmsháskóla 1940-'45 og lauk MA-prófum í þeim greinum 1944. Jónas hefur verið sæmdur stórriddarakrossi íslensku Fálkaorðunnar, norsku St. Olavs-orðunni og sænsku Nordstjãrnan-orðunni.Eftir Jónas liggur mikill fjöldi greina og álitsgerða um hagfræði, atvinnumál og stjórnmál. Hann var virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi og þrautreyndur bankastjóri.
Varaði við haftabúskap
Í viðtali hjá DV árið 2009 kom fram að Jónas átti mikinn þátt í því að Íslendingar létu loks af þeirri haftastefnu sem hér var tekin upp í kjölfar kreppunnar miklu, en í viðtalinu ræddi hann við Illuga Jökulsson um kreppuárin á fjórða áratugnum. Þá sagði Jónas: „Það er auðvitað nærtækt en samt á margan hátt villandi að draga samasem-merki milli kreppunnar á fjórða áratugnum og þess sem við erum að ganga í gegnum núna. Ástæður og framgangur kreppunnar þá voru af öðru tagi en kreppan nú. Helsti lærdómurinn sem nú má draga af þeirri kreppu sem geisaði þegar ég var ungur maður snýst um úrræðin; að við megum alls ekki bregðast við með því að reisa utan um okkur höft og varnarmúra sem munu tefja efnahagsbatann gríðarlega ef slík verður niðurstaðan í of langan tíma.“ Hann varaði eindregið við haftabúskap og sagði : „Haftabúskapurinn var óttalega andstyggilegur. Hvað svo sem menn gera núna til að bregðast við bankahruninu, þá fyrir alla muni má ekki leiða aftur inn haftabúskapinn!“
Æviágrip
Jónas var hagfræðingur hjá Nýbyggingarráði í Reykjavík 1945-'47, hjá Fjárhagsráði 1947-'50, hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum í Washington D.C. 1950-'57, fulltrúi Alþjóðabankans í Hondúras 1955-'56, formaður sendinefnda bankans til Mexíkó 1957, Venezúela 1965 og Ghana 1965, settur ráðuneytisstjóri viðskiptaráðuneytis 1958-'61, ráðunautur ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum 1957-'61 og í markaðsmálum Evrópu 1961-'62, ráðuneytisstjóri efnahagsráðuneytis 1961-'62, forstjóri Efnahagsstofnunarinnar 1962-'69, framkvæmdastjóri atvinnumálanefndar 1969, bankastjóri Landsbanka Íslands 1969-'87 og síðan aðalfulltrúi Norðurlandanna í stjórn Alþjóðabankans í Washington frá 1987.
Jónas sat í bankaráði Landsbankans 1946-'50, var formaður bankaráðs Útvegsbankans 1957-'61, varafulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 1965-'73, í stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands 1969-'70 og 1973-'78, í stjórn norræna iðnþróunarsjóðsins 1970-'73 og aftur um skeið frá 1979, formaður stjórnar Útflutningslánasjóðs 1971-'75 og aftur um skeið 1983, í bankaráði Scandinavian Bank Ltd í London 1972-'81, formaður stjórnar Sambands íslenskra viðskiptabanka 1972-'76 og í nokkur ár frá 1981, formaður stjórnar Reiknistofu bankanna 1979, formaður Hagfræðingafélags Íslands 1959-'61, í framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs ríkisins 1965-'70, formaður Háskólanefndar 1966-'69, formaður Íslensk-ameríska félagsins 1968-'69, í stjórn Hjartaverndar 1973, í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins frá 1975 og forseti Rotaryklúbbs Reykjavíkur 1980-'81.
Fjölskylda
Fyrri kona Jónasar var Guðrún Erna Þorgeirsdóttir. Hún lést árið 1982. Sonur þeirra er Jónas Halldór Haralz. Síðari kona Jónasar var Sylvía Haralz. Hún lést árið 1996.


















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 
Átakasinni sem telur ekkert heilagt
„Í dag er hlustað á þessar konur“
Frjáls Verslun segir MR besta skólann
Hver er þinn næsti forseti?
Hvað finnst þér um tillögur stjórnlagaráðs?
