ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Jón Ásgeir verður á Beinni línu á eftir

Svarar lesendum í tvo tíma
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:00 › 14. febrúar 2012
Jón Ásgeir Jóhannesson.

Jón Ásgeir Jóhannesson.

Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi aðaleigandi Baugs, verður á Beinni línu DV.is síðar í dag, á milli klukkan tvö og fjögur eftir hádegið. Þar mun hann svara spurningum lesenda DV í beinni útsendingu.

Jón Ásgeir var einn af umsvifamestu athafnamönnum Íslands fyrir hrun og hafa staðið á honum mörg spjót undanfarin ár. Hann hefur eytt drjúgum tíma fyrir dómstólum, meðal annars vegna eignarhaldsins á Glitni banka. Slitastjórn bankans hefur viljað fá milljarða króna í skaðabætur vegna meintra inngripa Jóns Ásgeirs og lögsótti hann í Bandaríkjunum en tapaði því máli. Slitastjórnin hefur nú reist mál á hendur honum innanlands af sama tilefni.

Jón Ásgeir tók því erindi DV að vera á Beinni línu strax vel og er fús að svara þeim spurningum sem fólk vill fá svör við. Fram að þessu hafa fjölmargir setið fyrir svörum á þessum vettvangi. Má þar nefna Lilju Mósesdóttur sem svaraði lesendum á sunnudag. Þar á undan var Tryggvi Þór Herbertsson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, gestur Beinnar línu.

Lesendur tengjast Beinni línu í gegnum Facebook og hafa með þessu fágætt tækifæri til þess að spyrja þá sem svara beint. Athygli er þó vakin á því að ekki er hleypt að spurningum sem eru ómálefnalegar eða ærumeiðandi.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?