ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

Gengu fram á sprautur í garðinum

Íbúar í Austurbæ búnir að fá nóg
07:00 › 14. febrúar 2012
Íbúi á Grettisgötunni gekk fram á þetta þegar hann ætlaði út í búð um daginn.

Íbúi á Grettisgötunni gekk fram á þetta þegar hann ætlaði út í búð um daginn. Mynd: DV/Eyþór Árnason

  • Sprauturnar voru enn á vettvangi þegar ljósmyndara DV bar að garði nokkrum dögum síðar.

    Sprauturnar voru enn á vettvangi þegar ljósmyndara DV bar að garði nokkrum dögum síðar.Mynd: DV/Eyþór Árnason

Það var um síðustu helgi þegar ung móðir á Grettisgötunni brá sér út í búð. Hún ákvað að ganga eftir stígnum í garðinum í átt að Austurbíó og gekk fram á sprautur í garðinum. Henni var að vonum brugðið og lét nágranna sína vita. Þeir eru heldur betur ósáttir við ástandið enda fjölskyldufólk með lítil börn og þetta er ekki í fyrsta sinn sem sprautunálar finnast á lóðinni. Þær hafa reyndar fundist í garðinum, á bílastæðinu fyrir framan og á róló fyrir börnin.

Þar var frístundamiðstöð fyrir börn með aðstöðu um tíma og fundust blóðugar sprautur við rólurnar og inni í litlum kofum sem börnin léku sér í. Ástandið á þessu svæði er orðið svo slæmt að þegar íbúi í blokkinni sem DV ræddi við fór með börnin út að leika, byrjaði hann á því að skanna svæðið og kíkja inn í kofana þar sem skjólið var ákjósanlegt fyrir fíklana. Sem betur fer því þar fann hann pillubréf, plast utan af sprautunálum og áhöld. Nú er búið að rífa kofana en enn eru sprautur að finnast á víð og dreif og foreldrarnir sleppa krökkunum ekki lausum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?