ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

„Formaður Sjálfstæðisflokksins er kjáni“

Mörður Árnason les í svar Bjarna Ben
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
08:33 › 14. febrúar 2012
Bjarni Benediktsson.

Bjarni Benediktsson.

  • Mörður Árnason

    Mörður Árnason

  • Skjalið sem DV birtir í blaðinu í dag. Dagsetningin neðst skiptir höfuðmáli í því.

    Skjalið sem DV birtir í blaðinu í dag. Dagsetningin neðst skiptir höfuðmáli í því.

Mörður Árnason segir svar Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, vegna umfjöllunar DV um aðkomu hans að Vafningsmálinu svokallaða gefa tvær vísbendingar um „atferli og lyndiseinkunn Bjarna Benediktssonar, lögfræðings, alþingismanns og fyrrverandi kaupsýslumanns.“

Á bloggi sínu á Eyjunni í dag segir Mörður þessar tvær vísbendingar vera:

„Annarsvegar að formaður Sjálfstæðisflokksins skrifi undir hvað sem er að beiðni ættingja sinna.“

„Hinsvegar að formaður Sjálfstæðisflokksins sé einfeldningur – kjáni á daglegu máli – sem ekki veit undir hvað hann er að skrifa eða hvers vegna hann er beðinn að skrifa undir. Og er alveg sama.“

Sjá einnig:

Bjarni viðurkennir að hafa skrifað undir skjöl dagsett aftur í tímann

Fax til Glitnis sannar falsanir í Vafningsmálinu



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?