ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.7° 10m/s S

„Ég bara réð ekki við þetta“

Hafsteinn Númason er fyrir dómi eftir að hann tók lán hjá Avant fyrir leigubíl
12:00 › 14. febrúar 2012
Hafsteinn segir að hann hafi hreinlega ekki ráðið við að borga af öllum lánunum í einu. Þess vegna hafi hann hætt að borga af bílnum.

Hafsteinn segir að hann hafi hreinlega ekki ráðið við að borga af öllum lánunum í einu. Þess vegna hafi hann hætt að borga af bílnum. Mynd: DV/Kristinn Magnússon

  • Bifreið Hafsteins er sambærileg þessari. 2006 árgerð af Mercedes Benz E280.

    Bifreið Hafsteins er sambærileg þessari. 2006 árgerð af Mercedes Benz E280.Mynd: DV/Kristinn Magnússon

„Fyrstu afborganirnar af láninu voru um 73 þúsund krónur. En þegar mest var voru þær komnar yfir 180 þúsund krónur á mánuði,“ segir Hafsteinn Númason, sextugur leigubílstjóri, sem hefur verið stefnt fyrir dóm af fjármögnunarfyrirtækinu Avant. Hafsteinn tók 4,8 milljóna króna myntkörfulán hjá fyrirtækinu árið 2007 til að fjármagna kaup á Mercedes Benz-bifreið. Hafsteinn, sem starfað hefur hjá Hreyfli í tólf ár, lenti í miklum greiðsluvandræðum eftir efnahagshrunið – lánið hækkaði upp úr öllu valdi en á sama tíma fækkaði verkefnum hans verulega. „Fólk byrjar að skera allan óþarfa niður þegar það er í kröggum og leigubílar flokkast væntanlega undir það.“ Mál Avant gegn Hafsteini var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag. Eftir að hann hafði greitt af láninu í ár þá hækkaði það upp úr öllu valdi. „Ég borgaði bara vextina en ég var við það að gefast upp því ég var að reyna að borga alls staðar. Ég bara réð ekki við þetta,“ segir Hafsteinn.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?